fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Fókus

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 13. júní 2025 11:30

Heather Allansdóttir. Mynd/Háskólinn á Bifröst

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska fræðikonan Dr. Heather Allansdóttir hefur búið bæði á Íslandi og Bretlandi og segir hún hagstæðara að búa hérlendis þrátt fyrir hærri framfærslukostnað. Hún segir launin bæta það upp, en hún þénaði fjórum milljónum meira á ári á Íslandi miðað við Bretland. Hún ræddi um málin við The i Paper. 

Heather var í doktorsnámi við Oxford háskóla þegar hún var að leita sér að stöðu eftir námið og áttaði sig á því að það væri auðvelt að vinna betri laun erlendis en heima fyrir.

Heather, sem er með fræðilegan bakgrunn í lögfræði, sagði að sem háskólakennari í Bretlandi hefði hún fengið um 45 þúsund pund í laun, sem samsvarar um 7,7 milljónum króna. En á Íslandi eru laun fyrir svipaða stöðu, að sögn Heather, um 11,9 milljónir. Það munar 4,2 milljónum á ári.

Lífsgæðin betri

Heather flutti til Íslands fyrir sjö árum og bjó hér í þrjú ár og vann við Háskólann á Bifröst.

Hún segir að þó framfærslukostnaður á Íslandi sé mun hærri en í Bretlandi hafi launin bætt upp fyrir það og gott betur.

„Það er dýrt að búa þarna en ef þú færð íslensk laun þá er þetta mjög fínt,“ segir hún í samtali við The i Paper. 

„Lífsgæðin eru líka mikið betri, ég hafði gólfhita í íbúðinni minni, allt var svo hreint og rólegt og hljótt. Þetta er líka öruggasta land í heimi,“ segir hún og bætir við að það séu vissulega einhverjir gallar, eins og slakara vöruúrval, sérstaklega hvað varðar mat.

Hún segir að skattarnir séu líka frekar háir, en aftur bæti launin það upp.

Af hverju Allansdóttir?

Heather flutti aftur til Bretlands árið 2022, en hún segist hafa verið farin að sakna fjölskyldu og vina í heimalandinu. Hún hefur búið víðsvegar um heiminn, allt frá Norður-Ameríku til Austur-Evrópu en mælir sérstaklega með Norðurlöndunum.

Heather breytti nafninu sínu þegar hún flutti til Íslands. Hún hét áður Heather McRobie en breytti því í Heather Allansdóttir.

„Ég gerði það af ýmsum ástæðum, meðal annars til að flýta fyrir dvalarleyfi.“

Hún hefur ekki breytt því til baka. „Þetta átti bara að vera tímabundið en ég var svo hrifin af því að ég ákvað að halda því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Brooklyn Beckham lokar á fjölskylduna og svarar ekki skilaboðum

Brooklyn Beckham lokar á fjölskylduna og svarar ekki skilaboðum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Klæðaburður Laufeyjar vakti athygli á Tony-verðlaununum

Klæðaburður Laufeyjar vakti athygli á Tony-verðlaununum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Björn Ingi á tímamótum: „Besta ákvörðun sem hægt er að taka“

Björn Ingi á tímamótum: „Besta ákvörðun sem hægt er að taka“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Ódýrara að fara í bátsferð með vinkonunum en til sálfræðings“

Vikan á Instagram – „Ódýrara að fara í bátsferð með vinkonunum en til sálfræðings“