Leikarinn Jonathan Joss var skotinn til bana í gærkvöldi og hefur nágranni hans verið handtekinn vegna málsins. Leikarinn var þekktastur fyrir vinnu sína við teiknimyndaþættina King of the Hill þar sem hann fór með hlutverk John Redcorn III.
The New York Post greinir frá því að Joss hafi lent í rifrildi við nágranna sinn í gærkvöldi sem lauk með því að nágranninn greip skotvopn og skaut Joss ítrekað. Nágranninn tók svo til fótanna en var handtekinn skammt frá vettvangi.
Joss var 59 ára gamall.
Á laugardaginn fór fram sérstakur King of the Hill-endurfundur, viðburður þar sem leikarar þáttanna komu saman ásamt fjölmennum hópi aðdáenda. Einn aðdáandi greindi frá því á Reddit að þó samkoman hafi að mestu farið vel fram þá hafi ein uppákoma vakið sérstaka athygli. Jonathan Joss mætti nefnilega á svæðið, óboðinn, greip hljóðnema og hóf samhengislausan reiðilestur yfir aðstandendum þáttanna.
Joss hafði áður tilkynnt á samfélagsmiðlum að honum hefði ekki verið boðið á viðburðinn en hann reiknaði með að hann yrði samt staddur fyrir utan samkomuna þar sem hann myndi freista þess að fá að pússa skó gesta gegn vægu gjaldi. Þar með gaf leikarinn til kynna að hann væri á flæðaskeri staddur. Hann mun nýlega hafa misst hús sitt og hund í eldsvoða og glímt við heimilisleysi í kjölfarið, en aðdáendur hans höfðu stofnað til söfnunar til að styðja hann í gegnum þetta áfall.
Eftir viðburðinn á laugardaginn birti Joss færslu á Facebook þar sem hann óskaði eftir fari heim til San Antonio, enda hefði umboðsmaður hans hætt að svara símtölum hans. Skömmu eftir hádegi, að staðartíma, í gær sagðist hann hafa fengið far og væri á heimleið.