fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Fókus

Köttur út í mýri eftir 27 ár – Var framhjáhald ástæðan? – Eignaskiptum lokið í vinsemd

Fókus
Föstudaginn 30. maí 2025 21:30

Jackman og Furness

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áströlsku leikararnir, Hugh Jackman og Deborra-Lee Furness eru sögð hafa náð samkomulagi í vinsemd um skiptingu eigna þeirra, sem eru staðsettar í þremur löndum og áætlaðar að verðmæti 387 milljónir dala.

Jackman mun halda íbúð í New York í Chelsea hverfinu á Manhattan og íburðarmikilli fasteign í Bondi Beach í Ástralíu. Ekki er sérstaklega tekið fram í skýrslunni hvaða eignir Furness mun fá.

Íbúðin í New York
Íbúðin í New York
Eignin í Ástralíu

„Sátt náðist sem Deborra er ánægð með, sem felur í sér myndarlega meðlagsgreiðslu,“ sagði heimildarmaður DailyMail. „Það voru viðræður fram og til baka varðandi þennan fjárhagssamning en á endanum fékk Deborra það sem hún taldi sig eiga skilið. Bæði koma fjárhagslega örugg frá skilnaðinum.“

Jackman, 56 ára, og Furness , 69 ára, tilkynntu skilnað sinn í september 2023 eftir 27 ára hjónaband og sögðu: „Við höfum átt því láni að fagna að deila næstum þremur áratugum saman sem eiginmaður og eiginkona í yndislegu, ástríku hjónabandi. Ferðalag okkar núna er að breytast og við höfum ákveðið að skilja til að efla þroska okkar sem einstaklingar.“

Furness sótti formlega um skilnað í New York þann 23. maí síðastliðinn þrátt fyrir að þau hjónin hafi skilið að borði og sæng fyrir tveimur árum.

Jackman og Furness giftu sig árið 1996 og eiga saman tvö ættleidd börn: soninn Oscar, 25 ára, og dótturina Ava, 19 ára. 

Jackman er nú í sambandi með Broadway mótleikara sínum, leikkonunni Sutton Foster, sem hefur vakið upp sögusagnir um framhjáhald miðað við tímasetninguna á því hvenær samband þeirra hófst. Jackman og Foster, 50 ára, hafa þekkst í gegnum leiklistina í mörg ár, en urðu nánari þegar þau léku saman í The Music Man, sem æfingar hófust á árið 2019. Sýningar stóðu yfir frá desember 2021 til janúar 2023.

Jackman og Foster

Ári eftir að Jackman skildi við eiginkonu sína  sótti Foster um skilnað við seinni eiginmann sinn, Ted Griffin, í október 2024 eftir 10 ára hjónaband.

Nýlega lét Furness þau falla um lok hjónabands síns að um væri að ræða „áfallaferð svika“ og „djúpt sár sem sker djúpt“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Enok tjáir sig um fröllu-hneykslið – „Við Birgitta erum góð sko, við erum bara best í heimi“

Enok tjáir sig um fröllu-hneykslið – „Við Birgitta erum góð sko, við erum bara best í heimi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hildur Líf gerir það gott úti í Arizona

Hildur Líf gerir það gott úti í Arizona
Fókus
Fyrir 4 dögum

Missti vinnuna eftir að hún kvartaði undan feitu fólki í Pilates

Missti vinnuna eftir að hún kvartaði undan feitu fólki í Pilates
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jón lætur Enok heyra það – „Barnið ykkar mun sjá svona hluti“

Jón lætur Enok heyra það – „Barnið ykkar mun sjá svona hluti“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Birtir mynd eftir rúm tvö ár á Mounjaro – „Ég trúi ekki að þetta sé ég núna“

Birtir mynd eftir rúm tvö ár á Mounjaro – „Ég trúi ekki að þetta sé ég núna“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dramað nær nýjum hæðum: Blokkaði vinkonurnar – „Best að hann fari bara að borða franskarnar sínar“

Dramað nær nýjum hæðum: Blokkaði vinkonurnar – „Best að hann fari bara að borða franskarnar sínar“