fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Fókus

Hildur Líf gerir það gott úti í Arizona

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 29. maí 2025 09:00

Hildur og fyrirsætan Ray Ransom.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Líf Higgins (Hilda) hefur verið að vinna að mjög spennandi verkefni í Arizona, þar sem hún er búsett. Sýningin – Exhibit 1.0 Creative Showcase – sló í gegn en allur ágóði rann til góðgerðamála, en Hilda hefur verið virk í góðgerðastarfsemi um árabil og vinnur náið með samtökunum Champions For The Homeless.

Hilda segir að þetta hafi ekki verið hefðbundin listasýning, heldur lifandi hátíð lista, tísku og góðgerðastarfs, knúin áfram af einstöku teymi skapandi einstaklinga og innblásin af þörf samfélagsins fyrir samkennd.

Hilda.

„Hugmyndin að Exhibit 1.0 fæddist af einfaldri en djúpstæðri löngun: Að sameina glæsileika listasafns með krafti tísku. Undir lokin var uppboð og rann ágóðinn til góðgerðamála fyrir heimilislausa.“ Það var margt spennandi á uppboði, meðal annars gaf NFL-kappinn Ty Montgomery Hildu áritaða jersey frá Patriots.

Vita Galore.

Hilda er listrænn stjórnandi verkefnisins. Hún hefur bakgrunn sem fyrirsæta, stílisti og skartgripahönnuður. Hinir eru Angel Virtuoso, rekstrarstjóri og fatahönnuður, og Trevar Smooth, list- og viðburðarstjóri með yfir áratug af reynslu úr listheiminum og stofnandi verkefnisins.

Þau fengu til liðs við sig Tony James, hönnuð Throne of Grace Clothing, fatamerki frá Arizona, og Payton Whitmore, útvarpsstjörnu í Arizona.

Hilda segist vera þakklát fyrir allt traustið frá hönnuðum og fyrirsætum sýningarinnar.

„Sérstaklega Payton þar sem hún er ekki fyrirsæta heldur útvarpskona á Kiss FM og fyrrum körfuboltakona. En hún vildi fá aðstoð við að „rebranda“ sjálfa sig. Hún er þekkt fyrir „tomboy lookið“ svo mér datt í hug að setja saman þetta litla verkefni. Ég fékk hana líka með mér í model casting og fékk fyrirsætuþjálfarana Dalila Ajanovic og Makayla Larson til að aðstoða Payton við gang, pósa og fleira og hún gjörsamlega negldi þetta! Og Tony gerði algjörlega sitt líka og hannaði fallegan fatnað á hana,“ segir hún.

Payton í fötum frá Throne of Grace.
Fyrirsætur.
Frá sýningunni.

Frá sýningunni.

Hér að neðan má sjá myndir úr línunni hans Ross, ‘Elevate’ sem hann síðan gaf til góðgerðarmála. Hann gaf 20 buxur og boli úr línunni sinni til heimilislausra en margir kannast kannski við Ross sem fyrirsætu Under Armour.

The real Khiry í línunni hans Ross, ‘Elevate’. Mynd: Metamantis
Kiddfriendly. Mynd: Metamantis

Hægt er að kynna sér Exhibit 1.0 nánar á Creative Mag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Katrín útnefnd heiðursfélagi Hins íslenska töframannagildis

Katrín útnefnd heiðursfélagi Hins íslenska töframannagildis
Fókus
Fyrir 2 dögum

Rose Leslie vill ekki að börnin sín sjái eitt tiltekið atriði í Game of Thrones

Rose Leslie vill ekki að börnin sín sjái eitt tiltekið atriði í Game of Thrones
Fókus
Fyrir 4 dögum

Augnablikið í sófanum sem breytti öllu – Missti 120 kíló á Ozempic en hálfu ári seinna hafði þetta gerst

Augnablikið í sófanum sem breytti öllu – Missti 120 kíló á Ozempic en hálfu ári seinna hafði þetta gerst
Fókus
Fyrir 4 dögum

J.Lo gerði allt vitlaust með ögrandi atriði – Kyssti dansara blautum kossi

J.Lo gerði allt vitlaust með ögrandi atriði – Kyssti dansara blautum kossi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Vikan á Instagram – Veiðiferð, skvísur á Formúlunni og alvöru stelpudjamm

Vikan á Instagram – Veiðiferð, skvísur á Formúlunni og alvöru stelpudjamm
Fókus
Fyrir 5 dögum

Gerður sendi Enok broslega pillu vegna athugasemdar hans um Birgittu Líf

Gerður sendi Enok broslega pillu vegna athugasemdar hans um Birgittu Líf