fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Fókus

Hver er staðan hjá Bennifer? – Ben fluttur út og mætti einn í útskrift dótturinnar

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. maí 2024 16:30

Ben Affleck og Jennifer Lopez

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlar vestanhafs virðast telja niður í þann dag sem hjónin Jennifer Lopez og Ben Afflect tilkynna um skilnað sinn, en sögusagnir herma að hjónabandið hangi nú á bláþræði.

Affleck mætti án eiginkonunnar ​​í útskriftarveislu dóttur sinnar Violet og virtist dapur að sjá að sögn Page Six. Affleck á Violet sem er 18 ára og dótturina Seraphina, 15 ára, og soninn Samuel, 12 ára, með leikkonunni Jennifer Garner. Þau skildu árið 2018 eftir 13 ára hjónaband.

Ben Affleck

Það sem vakti meiri athygli en útskrift dótturinnar var að Jennifer Lopez var hvergi að sjá, en heimildarmenn segja þau Affleck hafa búið á sitt hvoru heimilinu undanfarnar vikur og að þau ætli að binda enda á hjónabandið eftir að hafa ekki getað látið hlutina ganga upp. Sést hefur til Affleck án giftingarhringsins.

„Ef það væri leið til að skilja á grundvelli tímabundinnar geðveiki, þá myndi hann gera það,“ sagði heimildamaður Page Six. „Ben líður eins og síðustu tvö ár hafi bara verið fantasía og hann hafi nú áttað sig á hlutunum og skilur að það er bara engin leið að hjónabandið muni virka.“

Hjónin hófu ástarsamband sitt að nýju árið 2021 og giftu sig í Las Vegas árið 2022. 

Mæðgurnar Jennifer Garner og Violet.

Lopez mætti einsömul á Met Gala fyrr í þessum mánuði og jafnframt á rauða dregilinn við frumsýningu nýjustu myndar hennar, Atlas, sem horfa má á á Netflix. Bannaði hún allar spurningar um hjónaband hennar á frumsýningu myndarinnar. Affleck mun vera fluttur út af heimili þeirra, 60 milljón dala setri í Bel Air, sem þau voru tvö ár að finna og gera að draumaheimilinu. Lopez býr þar nú ein ásamt börnum sínum, meðan Affleck býr í leiguhúsnæði steinsnar frá fyrri eiginkonu sinni og börnum þeirra.

Hjónin hittust í síðustu viku, í fyrsta sinn í 47 daga, á skólaleikriti Seraphinu, dóttur Affleck. Þar mætti Lopez ásamt dóttur sinni Emmu, en hún og Seraphina eru miklar vinkonur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform
Fókus
Í gær

Brjálaður yfir hegðun stúlkna á hvítri Teslu – „Skammist ykkar!“

Brjálaður yfir hegðun stúlkna á hvítri Teslu – „Skammist ykkar!“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Mig langar að skora á Kastljósið að bjóða mér og Ölmu Möller að ræða málin“

„Mig langar að skora á Kastljósið að bjóða mér og Ölmu Möller að ræða málin“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Manst þú eftir drengnum í Tortímandanum? Svona lítur hann út í dag

Manst þú eftir drengnum í Tortímandanum? Svona lítur hann út í dag
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vinsælir þættir snúa aftur – Síðasti þáttur var sýndur árið 2019

Vinsælir þættir snúa aftur – Síðasti þáttur var sýndur árið 2019
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Nú bíð ég spennt eftir jólabókaflóðinu“

„Nú bíð ég spennt eftir jólabókaflóðinu“