fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Barnastjarnan varpar ljósi á gríðarleg auðæfi sín

Fókus
Miðvikudaginn 27. mars 2024 08:12

Frankie Muniz til hægri í hlutverki sínu í Malcolm in the Middle.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Frankie Muniz, sem gerði garðinn frægan í þáttunum Malcolm in the Middle á árunum 2000 til 2006, þarf ekki að vinna erfiðisvinnu framar.

Muniz tekur þátt í raunveruleikaáttunum I‘m a Celebrity…Get Me Out of Here! og í einu atriði barst talið að þeim peningum sem Muniz hefur unnið sér inn á ferli sínum.

Muniz var aðeins 15 ára þegar hann byrjaði í Malcolm in the Middle og áður en yfir lauk fékk hann sem nemur 150 þúsund dollurum á hvern þátt. Alls voru gerðir 150 þættir og fékk Muniz því vel í aðra hönd fyrir þættina auk annarra verkefna sem hann tók að sér.

Í þáttunum barst talið að áreitinu sem fylgir því að vera þekktur og þeirri hörðu gagnrýni sem leikarar fá stundum á sig. Muniz sagðist áður fyrr hafa bitið frá sér og rifjaði svo upp samtal sem hann átti við einn ungan mann á netinu.

„Það var krakki sem skrifaði að ég væri hræðilegur leikari. Ég sagðist alveg geta tekið undir það en sagði svo við hann að ég hefði eitt sem væri ekki svo hræðilegt. Að geta sest í helgan stein 19 ára með 40 milljónir dollara á bankareikningnum,“ sagði Muniz en það er upphæð sem nemur 5,5 milljörðum króna.

Þegar hann var spurður hvort hann væri búinn að afla sér nægjanlegra tekna til að geta sest alfarið í helgan stein stóð ekki á svarinu. „Já, 100%.“

Muniz er í dag 38 ára og hefur ekki tekið að sér mörg stór hlutverk á undanförnum árum, enda ekki beint þurft þess. Hann hefur komið fram í gestahlutverkum hér og þar og minni hlutverk í þáttum og bíómyndum.

Hann er í dag búsettur í Arizona ásamt eiginkonu og tveggja ára barni og einbeitir sér einkum að kappaksturskeppnum þessa dagana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta