Vandræðalegt atvik í flugvél á leiðinni til Íslands var ástæðan fyrir því að Sarah Speight ákvað að fara í magaermis aðgerð. Hún hefur misst um 70 kíló á rúmu ári.
„Ég var að fara til Íslands og ég þurfti að sitja við gluggann af því mér fannst svo vandræðalegt að biðja um framlengingu á öryggisbeltinu,“ segir hin breska Sarah við dagblaðið Manchester Evening News. „Ég þurfti að þykjast líta út fyrir að beltið mitt væri fast þegar það var það ekki.“
Hin 35 ára gamla Sarah var í mikilli yfirvigt og vó um 160 kíló. Hún hreyfði sig lítið og át að mestu leyti pizzu, súkkulaði kökur og McDonalds hamborgara. Hún gat ekki fest öryggisbeltið utan um sig í flugvélinni.
„Þegar flugþjónninn kom hélt ég beltinu yfir mig og þóttist hafa það fast. Þetta var alveg hræðilegt. Ég sá að ég væri sú eina sem var kramin í sætinu mínu. Ég gat ekki hreyft fótleggina. Ég var að leka yfir í næsta sæti. Ég man eftir að hafa hugsað um hvað þetta var vandræðalegt og ég gæti þetta ekki meira.“
Sarah hafði reynt alla megrunarkúra í bókinni en enginn af þeim hafði virkað. Henni fannst grænmeti vont á bragðið og gat ekki fengið sig til að hreyfa sig. Fyrir utan þessa skelfilegur lífsreynslu í flugvélinni þá hafði hún nýlega verið sett á blóðþrýstingslyf.
„Ég varð að kaupa öll mín föt á netinu í verslunum sem seldu stærri föt og ég hafði ekki mikið úrval til að velja um. Ég varð að kaupa það sem ég komst í en ekki það sem ég vildi klæðast. Ef ég á að vera hreinskilin þá átti ég ekki mikið líf. Ég hataði að fara út fyrir hússins dyr og forðaðist allan félagsskap,“ segir Sarah. „Ég missti mikið af vinum af því að ég sinnti engum vinskap. Ég sat bara heima og forðaðist samskipti við alla.“
Eftir atvikið í flugvélinni ákvað hún að nú yrði eitthvað að gerast. Hún ákvað að fara í magaermisaðgerð. Það var ekki ódýrt því að hún ákvað að gera það á einkastofu.
„Ég hefði sennilega getað farið í gegnum NHS (breska heilbrigðiskerfið) en biðlistinn á mínu svæði var fimm ár í það minnsta. Ég hefði líka þurft að missa mikla þyngd áður sem ég gat ekki gert og ég hefði líka þurft að fara í tíma í hverri viku sem ég vildi ekki gera,“ segir Sarah.
Hún fór í aðgerðina í Stockport í febrúar árið 2023. Eins og áður segir hefur hún misst um 70 kíló síðan þá. Mataræðið er komið í jafnvægi og Sarah fer í líkamsrækt tvisvar á dag.
„Þetta gjörbreytti lífi mínu,“ segir Sarah. „Nú á ég vini og elska að fara í ræktina sem ég bjóst aldrei við. Sjálfstraustið er í botni. Allt er frábært.“