fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Opnar sig um átakanlega reynslu – Lék fæðingu á sviði á hverju kvöldi en missti fóstur á sama tíma

Fókus
Þriðjudaginn 26. mars 2024 12:30

Anne Hathaway. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Anne Hathaway opnaði sig um átakanlega reynslu í forsíðuviðtali í nýju tölublaði Vanity Fair. Þar greinir stjarnan frá því að árið 2015 hafði hún orðið ólétt af sínu fyrsta barni en um svipað leyti landaði hún hlutverki í leikritinu Grounded þar sem hún lék orrustuflugmann sem þarf að endurskoða starfsvettang sinn eftir að hún verður óvart ólétt.

Í sýningunni þurfti Anne að leika fæðingu á hverju kvöldi en það reyndist henni gríðarlega erfitt í ljósi þess að hún upplifði þá miklu sorg að missa fóstur á meðan sýningunum stóð.

Anne lét hins vegar á engu bera og hélt sársaukanum innra með sér en segist hafa liðið vítiskvalir á meðan.

Anne hefur verið gift Adam Shulman síðan 2012 en tveimur árum síðar gekk allt upp og þau eignuðust soninn Jonathan og síðar soninn Jack sem í dag er þriggja ára gamall.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta