fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
Fókus

Madonna tæklar vinsælasta dansinnn á netinu í dag – Er stríðsöxin grafin?

Fókus
Föstudaginn 3. febrúar 2023 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sönggyðjan Madonna er alltaf með puttann á púlsinum og það sýndi hún vel í nýjasta myndskeiðinu sem hún deildi á TikTok en þar tók hún sína eigin útgáfu af vinsælum TikTok-dans sem er innblásinn af atriði úr sjónvarpsþáttunum Wednesday.

Upphaflega var dansinn í þáttunum dansaður við lagið Monster Mash en á TikTok hefur verið vinsælt að dansa þessi spor við lagið Bloody Mary eftir Lady Gaga.

Því vakti það sérstaka athygli að Madonna dansaði við Lady GaGa lagið enda hafa þær lengi eldað grátt silfur saman. Því túlka margir spor Madonnu sem eins konar tilraun til að grafa stríðsöxina.

@madonna♬ original sound – heyy

Deilur Madonnu og Gaga má rekja aftur til þess tíma sem Gaga gaf út aðra plötu sína í fullri lengd. Á þeirri plötu mátti finna lagið Born This Way sem var strax borið saman við lag Madonnu – Express Yourself.

Gaga var ekki hrifinn af þeim samanburði og kallaði hann heimskulegan. Enginn gæti sakað hana um að hafa stolið nokkru frá Madonnu heldur hefðu hún bara gripið diskó-andann sem hafi verið til löngu fyrir tíð Madonnu og komið því inn á topplista útvarpsstöðvanna. Það þýddi ekki að hún væri að herma eftir Madonnu heldur mikið frekar að Gaga væri sniðug.

Madonna sagði þó í viðtali árið 2015 að það væri ljóst að Gaga væri að herma bæði eftir ímynd hennar sem og tónlist.

Gaga ræddi svo um samskipti sín og Madonnu í heimildarmynd sinni árið 2017 og þar sagði hún:

„Að segja mér að þér finnist ég vera drullusokkur í gegnum fjölmiðla er eins og ef strákur myndi rétta mér miða í gegnum viða sinn þar sem stæði – Vini mínum finnst þú sæt.“

Lady Gaga er svo sjálf að sjálfsögðu búin að gera myndband með dansinum fræga.

@ladygaga BLOODY WEDNESDAY #fyp ♬ original sound – heyy

Hér má sjá upprunalegu dansporin úr Wednesday: 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform
Fókus
Í gær

Brjálaður yfir hegðun stúlkna á hvítri Teslu – „Skammist ykkar!“

Brjálaður yfir hegðun stúlkna á hvítri Teslu – „Skammist ykkar!“
Fókus
Í gær

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn
Fókus
Í gær

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Mig langar að skora á Kastljósið að bjóða mér og Ölmu Möller að ræða málin“

„Mig langar að skora á Kastljósið að bjóða mér og Ölmu Möller að ræða málin“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Manst þú eftir drengnum í Tortímandanum? Svona lítur hann út í dag

Manst þú eftir drengnum í Tortímandanum? Svona lítur hann út í dag
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vinsælir þættir snúa aftur – Síðasti þáttur var sýndur árið 2019

Vinsælir þættir snúa aftur – Síðasti þáttur var sýndur árið 2019
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Nú bíð ég spennt eftir jólabókaflóðinu“

„Nú bíð ég spennt eftir jólabókaflóðinu“