fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fókus

Konungsfjölskyldan brjáluð yfir teboði prinsessunnar

Fókus
Miðvikudaginn 26. nóvember 2025 15:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lengi má manninn reyna, sérstaklega ef þú ert meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar. Nýlega var Andrés Mountbatten-Windsor, bróðir Karls Bretakonungs, sviptur titlum vegna tengsla sinna við níðinginn Jeffrey Epstein. Harry Bretaprins flúði land fyrir nokkrum árum með fjölskyldu sinni og minnir reglulega á það með viðtölum eða bókaskrifum. Enginn er kominn yfir það að Díana prinsessa lést í bílslysi árið 1997, konungurinn er heilsuveill með krabbamein, verðandi drottning Katrín prinsessa er að jafna sig eftir krabbamein og Vilhjálmur krónprins er víst farinn að girnast hásætið.

Því fannst víst engum í höllinni fyndið þegar dóttir Andrésar, Beatrice prinsessa, ákvað óvænt að boða til teboðs í Sádí-Arabíu í október. Teboðið hafði á sér formlegt yfirbragð en var þó ekki á vegum konungshallarinnar, en þar urðu menn slegnir þegar myndir fóru að birtast í fjölmiðlum.

Heimildarmaður segir nú í samtali við Express að konungsfjölskyldunni hafi þótt þetta vægast sagt ósmekklegt af prinsessunni. Nú verði haldið fastar á málum í höllinni og ætli Beatrice að koma fram undir konunglegum titlum sínum þarf hún að afla fyrirfram samþykkis, þetta er gert til að koma í veg fyrir frekari hneyksli í tengslum við Andrés og hans væng af fjölskyldunni. Almennt er Beatrice vel liðin innan hallarinnar og þykir mönnum þar synd og skömm ef svipta þurfi  hana titlum eins og föður hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Svona eiga Jón og Hafdís saman – „Ástin er brennandi“

Svona eiga Jón og Hafdís saman – „Ástin er brennandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensk leikkona á sér tvífara í öðru landi

Íslensk leikkona á sér tvífara í öðru landi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gímaldin gefur út nótnahefti og helmingur rennur til verkefna á Gaza

Gímaldin gefur út nótnahefti og helmingur rennur til verkefna á Gaza
Fókus
Fyrir 5 dögum

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug
Fókus
Fyrir 5 dögum

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk