fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fókus

Paralympic-dagurinn er á laugardag

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 30. nóvember 2023 10:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Paralympic-dagurinn verður haldinn, á vegum Íþróttasambands fatlaðra (ÍF), laugardaginn 2. desember milli kl. 13 og 15. Hátíðin verður í frjálsíþróttahúsinu sem tengt er Laugardalshöll.

Þórður Árni Hjaltested, formaður ÍF, ræðir um íþróttir fatlaðra í tilefni dagsins, á vefnum Hvatasport. Þar segir meðal annars:

„Paralympic dagurinn er nú sem hingað til helgaður kynningu á íþróttagreinum sem stundaðar eru innan vébanda Íþróttasambands fatlaðra (ÍF). Íþróttanefndir ÍF, aðildarfélög ÍF og samstarfsaðilar sambandsins koma saman í frjálsíþróttahúsinu í Laugardal, sem tengt er Laugardalshöll, til að kynna íþróttagreinar sem í boði eru og starfsemi íþróttafélaga fatlaðra. Samstarfsaðilar ÍF verða með kynningar og boðið er upp á veitingar í boði Toyota á Íslandi. Einnig verða drykkir í boði Coke á Íslandi.“

Þórður segir að markmiðið með deginum sé að auka þátttöku í íþróttum fatlaðra. Fatlaðir einstaklingar og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta og kynna sér það sem í boði er. Síðan segir:

„Mikilvægi hreyfingar er mikið og ekki síst fyrir einstaklinga með fötlun sem geta með markvissri þátttöku í íþróttum aukið lífsgæði og getu til þátttöku í samfélaginu.“

Sjá nánar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Reglulegt starfsmannasamtal breytti öllu hjá Maren – „Þarna eru öll rauðu flöggin!“

Reglulegt starfsmannasamtal breytti öllu hjá Maren – „Þarna eru öll rauðu flöggin!“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fagnaði 20 ára afmæli Kattarkonunnar fáklædd

Fagnaði 20 ára afmæli Kattarkonunnar fáklædd
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum