fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Áhorfendur göptu þegar hún sagði kynlífssöguna – „Guð minn góður“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 12. mars 2022 14:26

Nameya - Skjáskot/Channel 4

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þættirnir Naked Attraction eru nokkuð óvenjulegir stefnumótaþættir en í þeim er grunnurinn þó eins og í öðrum slíkum þáttum. Í hverjum þætti er einn þáttakandi sem velur sér maka en hvernig valið fer fram er það sem skilur þættina frá öðrum í sama flokki.

Valið stendur nefnilega á milli 6 keppenda sem allir eru naktir en sá eða sú sem er að velja fær alltaf að sjá aðeins meira og meira af nöktu líkömunum. Sá eða sú sem velur ákveður hvaða keppanda hún eða hann vill ekki velja og þá dettur viðkomandi úr keppninni. Þegar tveir keppendur eru eftir fer sá eða sú líka úr fötunum og velur sér svo annan aðilann. Þau fara svo á stefnumót í fötum eftir það.

Þrátt fyrir að nektin sé allsráðandi í þáttunum er hægt að koma áhorfendum þáttanna á óvart. Það sást kannski hvað best í nýlegum þætti þar sem kona að nafni Nameya var að velja sér maka.

Vonaðist eftir því að finna réttu stelpuna í þættinum

Nameya útskýrði í þættinum að hún væri tvíkynhneigð en að hún væri ekki með mikla reynslu þegar kemur að því að vera með einstaklingum af sama kyni. Hún sagðist vera opin fyrir því að finna bæði karlkyns eða kvenkyns maka en hún sagðist þó vera að vonast eftir því að finna stelpu.

Áður en Nameya mætti í þáttinn var útskýrt nánar hvað hún átti við með reynsluleysi sínu þegar kemur að því að vera með stelpum. Í myndbandi sem hún sendi á sjónvarpsstöðina sem sýnir þættina sagðist Nameya hafa reynt að daðra við stelpur en að hún hafi ekki náð lengra en það. Þá sagðist hún hafa kysst nokkrar stelpur.

Í þættinum sjálfum opnaði Nameya sig svo enn meira um tvíkynhneigðina sína. Hún ákvað að segja kynlífssögu sem varð til þess að áhorfendur göptu yfir skjánum.

Nameya sagði frá því þegar hún sagði vinkonu sinni að kannski myndi hún aldrei fá að stunda kynlíf með annarri konu. Vinkonan brá þá á það ráð að stunda kynlíf með henni svo hún gæti prófað það að minnsta kosti einu sinni.

Netverjar hneyksluðu sig á sögunni

Eins og fyrr segir vakti þessi saga upp mikil viðbrögð hjá áhorfendum en einhverjir þeirra gerðu sér ferð á samfélagsmiðilinn Twitter til að hneykslast á kynlífssögunni.

„Guð minn góður, þetta eru allt of miklar upplýsingar. Ég þarf ekki að vita hvað þú og vinkona þín gerðuð,“ sagði til að mynda einn netverji eftir að hafa heyrt söguna.

„Bíddu, hvað?!“ sagði annar sem var greinilega mjög hissa með hvað Nameya var opinská.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta