fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Fókus

Getur ekki sofið því brjóstin eru svo stór

Fókus
Fimmtudaginn 29. september 2022 22:00

Skjáskot/E4

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Send Nudes: Body SOS, nýr sjónvarpsþáttur sem hóf göngu sýna á bresku sjónvarpsstöðinni E4, hefur vakið töluverða athygli. Um er að ræða raunveruleikaþátt þar sem þáttakendur láta taka ótal myndir af nöktum líkömum sínum til að skanna þá. Í kjölfarið er notast við tækni sem gerir þáttakendum kleift að sjá hvernig líkaminn þeirra myndi líta út eftir lýtaaðgerðir.

Melissa, 24 ára gömul kona í hjúkrunarnámi, er ein af þáttakendum raunveruleikaþáttarins en hún ákvað að taka þátt því henni finnst brjóstin sín vera of stór. Melissa segir í þættinum að hún hafi verið í góðu formi þegar hún var yngri en að það hafi verið erfitt að viðhalda því þegar brjóstin fóru að stækka. Hún segist vera með sjaldgæfan sjúkdóm sem kallast gigantomastia sem gerir það að verkum að brjóstin stækkuðu of mikið, hún notar brjóstahaldara í stærð 36MM.

„Ég er ekki ánægð með þau, þau eru risastór,“ segir Melissa í þættinum. „Ég get ekki beygt mig, ég get ekki sofið því ég finn fyrir svo miklum sársauka.“

Í þættinum fær Melissa að sjá hvernig hún myndi líta út ef hún myndi láta minnka brjóstin. „Ég hef alltaf litið út fyrir að vera eldri en ég er, ég get ekki farið út án þess að fólk stari á mig, komi með athugasemdir eða móðgi mig. Ég er komin með nóg af því.“ sagði hún.

„Fólk segir alltaf við mig að það vilji vera eins og ég en ég held að það skilji ekki afleiðingarnar sem þetta hefur. Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að ganga í gegnum þetta.“

Í þættinum er um 50 manna hópur af venjulegu fólki sem segir sína skoðun á því hvort þáttakandinn eigi að fara í aðgerð. Í tilviki Melissu voru áhorfendur hrifnir af tölvugerðu útliti hennar með minni brjóst og ákvað Melissa að fylgja því áliti, það er að fara í brjóstaminnkunaraðgerð. Melissa sagði þó að hún ætlaði að bíða með að fara í aðgerðina þar til hún klárar námið sitt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hitti Drake eftir að hún gaf honum brjóstahaldarann sinn: „Ég held ég segi ekki meira en það“

Hitti Drake eftir að hún gaf honum brjóstahaldarann sinn: „Ég held ég segi ekki meira en það“
Fókus
Í gær

Systir Biöncu Censori fetar í hennar fótspor með djörfu fatavali

Systir Biöncu Censori fetar í hennar fótspor með djörfu fatavali
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hyldýpi – Þeysireið um myrkur mannheima

Hyldýpi – Þeysireið um myrkur mannheima
Fókus
Fyrir 2 dögum

Agnes selur einstaka Parísarhæð

Agnes selur einstaka Parísarhæð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Konungsfjölskyldan enn og aftur sögð brjáluð út í Harry Bretaprins eftir nýlegt viðtal – „Harry kann ekki að þegja“

Konungsfjölskyldan enn og aftur sögð brjáluð út í Harry Bretaprins eftir nýlegt viðtal – „Harry kann ekki að þegja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Afhjúpar hvernig hann blekkti John Cusack í töku eins goðsagnakennda atriðis 80’s tímabilsins

Afhjúpar hvernig hann blekkti John Cusack í töku eins goðsagnakennda atriðis 80’s tímabilsins
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Var einmana fyrst þegar hann flutti til Bandaríkjanna – Þetta gerði hann til að kynnast fólki

Var einmana fyrst þegar hann flutti til Bandaríkjanna – Þetta gerði hann til að kynnast fólki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram: „Hotmömmubikinígellustælar, það má líka“

Vikan á Instagram: „Hotmömmubikinígellustælar, það má líka“