fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Hræðilega ástæðan fyrir því að eiginmaðurinn var ekki að svara skilaboðunum hennar

Fókus
Föstudaginn 1. apríl 2022 21:00

Bonnie og Matt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bonnie Caldwell frá Nýja-Sjálandi var pirruð út í eiginmann sinn fyrir að svara ekki skilaboðum hennar á meðan hann var í ferðalagi með vinum sínum. Hún komst stuttu seinna að það var vegna þess að hann var látinn.

Bonnie er 26 ára ekkja og deildi sögu sinni á TikTok. Hún byrjaði á því að birta myndband þar sem hún reynir að slá á létta strengi. Í byrjun myndbandsins má sjá hana fúla á svip: „Ég að vera pirruð út í eiginmann minn sem var ekki að svara mér í strákaferð.“

Síðan færist myndbandið yfir á mynd af eiginmanni hennar: „Hann var dáinn.“

@bonniec17 I mean he could have at least given me a heads up 🙄 #darkhumour ♬ original sound – kooze

Myndbandið hefur vakið gríðarlega athygli og birti Bonnie annað myndband þar sem hún segir frá slysinu. NY Post greinir frá.

Eiginmaður Bonnie, Matt Caldwell, lést aðeins 25 ára gamall í hræðilegu slysi þann 8. ágúst 2021. Hann fór með vinum sínum á íþróttaleik í nágrannaborg og gistu á hóteli í eina nótt.

Bonnie sendi honum nokkur skilaboð um morguninn, meðal annars: „Ég elska þig“ og „Ég get ekki beðið eftir að sjá þig.“

„Hann svaraði ekki, sem mér fannst frekar skrýtið. En mér datt í hug að hann væri kannski bara þunnur,“ segir hún.

Nokkrar klukkustundir liðu og var Bonnie ekki enn búin að fá svar. Hún var þá byrjuð að hafa áhyggjur. „Ég var byrjuð að átta mig á því að eitthvað mikið væri að. Nokkrir klukkutímar liðu til viðbótar og síðan fékk ég skilaboð frá bróður Matt þar sem hann bað mig um að fara til þeirra samstundis, og ég hljóp út um dyrnar.“

Lögreglan var heima hjá bróður Matt og tilkynnti henni að eiginmaður hennar væri látinn.

Var utan við sig í símanum

Bonnie útskýrir að Matt lést í hræðilegu slysi, hann datt niður af mjög háum bakka (e. embankment) nálægt hótelinu.

„Hann áttaði sig ekki á brún bakkans og misreiknaði hversu hátt fallið var,“ segir hún og bætir við að Matt hefði látist samstundis og töldu rannsakendur slyssins að hann hefði verið utan við sig í símanum þar sem síminn hans fannst nálægt honum og enn myndband í gangi.

„Þetta var skelfilegt slys sem enginn okkar hefði getað komið í veg fyrir,“ segir hún.

Bonnie segir að þau hefðu bæði verið með svartan húmor og væri hún búin að nota húmorinn til að komast í gegnum síðastliðna átta mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta