fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Þetta þarftu að vita áður en þú ferð í trekant – Fjórar mikilvægar reglur

Fókus
Laugardaginn 11. september 2021 20:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eflaust hefur marga dreymt um að fara í trekant einhvern tíma á ævinni en það er ýmislegt sem þarf að gæta að áður en svoleiðs skref er tekið. Emily Morse, kynfræðingur og stjórnandi hlaðvarpsins Sex With Emily, ræddi um trekanta á Instagram-síðu sinni á dögunum en þar fór hún yfir það sem fólk verður að vita áður en það fer í trekant.

„Langar þig að fara í trekant? LESTU ÞETTA FYRST,“ skrifar Emily í Instagram-færslunni sem um ræðir en hún er með rúmlega 419 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlinum. „Þetta er ein af vinsælustu fantasíunum sem til eru,“ segir Emily svo og bætir við að fantasían sé sú vinsælasta hjá öllum kynum.

Emily mælir með að fólk geri nokkra hluti áður en farið er í trekant. „Talið mjög mikið um það og bætið því við í dónalegu samræðurnar í svefnherberginu. Ákveðið svo hvort þið viljið gera það með einhverjum sem þið þekkið eða einhverjum ókunnugum,“ segir hún. „Farið svo á stefnumót með aðilanum til að byrja með,“ bætir hún við og segir að þessi skref hjálpi fólki að eiga góða stund.

Þá er Emily með fjórar reglur fyrir fólk sem vill fara í trekant. Fyrsta reglan er að ræða saman um málið. „Góður trekantur byrjar með góðu sambandi milli tveggja aðila. Ef þú ert í sambandi, talið um þessa fantasíu og hvers vegna hún höfðar til ykkar beggja. Svo þarf líka að hugsa um hvort það sé eitthvað sem þið hafið áhyggjur af,“ segir hún.

Emily mælir með að fólk tali um fantasíuna í langan tíma áður en það ákveður að stíga skrefið. Þá varar hún fólk við að stunda trekant ef það er að gera það til að „laga“ sambandið sitt. Hún segir að mikilvægt sé að tala saman til að ákveða hvað megi og hvað megi ekki.

Önnur reglan er að æfa sig. Emily segir að það sé gott fyrir fólk að fara í hlutverkaleiki í svefnherberginu. Hún segir að dónalegt tal hjálpi líka og svo mælir hún með því að fólk horfi saman á klám til að það sjái hvað kveikir í þeim.

Þriðja reglan snýst um að finna rétta aðilan. Ef fólk ákveður að fara í trekant með einhverjum ókunnugum þá ætti það að fara á stefnumót með aðilanum fyrst. Emily mælir líka með því að fólk fari í kynlífspartý og segir að það sé góð leið fyrir fólk til að kynnast þessum heimi án þess að notast við stefnumótaforrit.

Fjórða og síðasta reglan snýst um að vera viss um að allir séu að njóta í trekantinum. Emily mælir með því að fólk leggi áherslu á að öllum líði vel. Hún segir að það sé mikilvægt að tala saman bæði fyrir, á meðan og eftir trekantinn.

Að lokum segir hún að fólk megi ekki búast við því að trekanturinn verði nákvæmlega eins og í fantasíunni og hún varar fólk við að vera með of miklar væntingar. „Ekki búast við fullkomnun,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta