Áhrifavaldurinn Brynjólfur Löve Mogensson eða Binni Löve eins og hann er betur þekktur sem er með yfir átján þúsund fylgjendur á Instagram-síðu sinni. Binni starfar sem verkefnastjóri samfélagsmiðla hjá Árvakri ein Árvakur rekur Morgunblaðið, mbl.is og útvarpsstöðina K100.
Á mynd sem Binni birtir í dag má sjá hann nakinn ofan í tjörn en hann tekur ekki fram hvar myndin er tekin. Textinn sem hann setur undir myndina er: „Það hættulegasta sem maður gerir er að lifa. Það hefur ekki nokkur maður lifað það af.“
Myndin var aðeins búin að vera uppi í hálftíma þegar Instagram fjarlægði myndina vegna nektar. Alls höfðu rúmlega 250 manns lækað myndina þegar hún var tekin út. Binni fékk tilkynningu um þetta og birti hana í story hjá sér. Binni gaf blaðamanni góðfúslegt leyfi til að birta myndina.