fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Barnsfaðir Margrétar réðst á hana fyrir framan foreldra hans og son þeirra – „Það var bara þögn. Enginn gerði neitt“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 7. desember 2021 11:30

Margrét Sif. Skjáskot/Eigin Konur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Sif Sigurðardóttir er nýjasti gestur Eddu Falak í hlaðvarpsþættinum Eigin Konur. Margrét brennur fyrir réttindum dýra og stofnaði samtökin TheBambiFoundation og Villikanínur. Hún keppir einnig í bikinífitness og sinnir auk þess móðurhlutverkinu af alúð.

Í hlaðvarpinu ræðir Margrét hvernig hún hafi kynnst barnsföður sínum ung og að sambandið hafi verið fullkomið í fyrstu. Hann kom vel fram við hana og taldi henni trú að hann elskaði hana. En svo byrjaði andlega ofbeldið og líkamlegt ofbeldi fylgdi svo í kjölfarið.

Þær ræða um þessa algengu spurningu sem þolendur fá: „Af hverju varstu þá með honum í þrjú, fjögur ár?“

„Það er bara það sem enginn er að fara að skilja nema að hafa lent í þessu. Af því að ég til dæmis flúði til Reykjavíkur, hann fann mig og bankaði bara upp á og fór með mig til baka. Ef ég vildi ekki vera með honum þá var hann að fara að berja þennan og berja hinn,“ segir hún og bætir við að hann hefði síðan beðist afsökunar og þóst sýna iðrun.

„Og hann stóð við það, í mánuð, svo byrjaði þetta aftur.“

Margrét segir að hún hefði reynt að tala við fólk um ofbeldið en það vildi ekki taka afstöðu með neinum eða „blanda sér í þetta.“

„Að sjá manneskjuna sem braut þig niður, vera bara fagnað þegar hann labbar inn. Þú átt bara að „vera þarna“ líka. Hvað áttu að gera? Ef enginn er að fara að standa með þér og þú ert það brotin að þú getur varla staðið með sjálfri þér,“ segir hún.

Andlega búinn á því

Eftir að sonur þeirra fæddist hætti Margrét með barnsföður sínum. Edda spurði hvort það væri ekki erfiðara að hætta með einhverjum þegar barn er komið í spilið vegna réttar hans til að hitta barnið.

„Réttakerfið sko. Þetta ætti að vera réttur barna til að þekkja foreldri sitt, ekki réttur ofbeldisforeldris til að umgangast barnið sitt. Réttur barna þegar kemur að þeirra rétti yfir höfuð. Hann er enginn. Þetta er fáránlegt,“ segir hún.

„Við endum á því að fara í sáttarmeðferð. Þá er einhver svona milliliður. Ég held að fólk átti sig heldur ekki á því hvað þarf mikið til þess að hægt sé að kæra einhvern. Og það er bara fáránlegt.“

Margrét segir að sonur hennar hefði verið búinn á því þegar hann kom heim frá pabba sínum. „[Sonur minn] var andlega búinn á því. Hann var brjálaður, hann sat í sófanum og glær í augunum og var þannig í tvo daga. Eftir að hafa byrjað að fara til hans byrjaði sonur minn að ráðast á mig. Hann var svo reiður: „Þú skildir mig eftir hjá pabba.““

Réðst á hana fyrir framan son þeirra

Margrét segir að hún hefði tekið meðvitaða ákvörðun að tala ekki illa um barnsföður sinn fyrir framan son sinn, heldur leyfa honum að mynda eigin skoðun.

„Ég lendi í því, í eitt skiptið sem hann er að hitta son okkar þá ræðst [barnsfaðir minn] á mig. Fyrir framan son okkar, þávaerandi kærustu sína og mömmu sína og pabba. Ég var með handarfar á líkamanum.“

Hún segir að hann hefði byrjað að kýla sjálfan sig í andlitið.

„Þetta er svo súrrealískt, […] Það er 50 prósent af fólkinu að fara að trúa þér og þó svo að það trúir þér þá er það aldrei að fara að átta sig á þessu. Hann byrjaði að kýla sjálfan sig í andlitið og ég spurði: „Fyrirgefðu er þetta að gera eitthvað fyrir þig?“ Hann bara bilaðist, greip í mig, lyfti mér upp, hrristi mig og henti mér þvert yfir herbergið. Ég lenti á einhverju, skíðastaf eða eitthvað. Ég var þarna blá og marin með handarför eftir hann. Hann reif sig úr bolnum, brjálaður og hljóp út. Þetta var náttúrulega „allt mér að kenna.““

Margrét furðar sig á viðbrögðum fjölskyldu hans og þáverandi kærustu.

„Hvernig þau brugðust við, hvernig bregst fólk við þegar það sér svona. Það myndi vera bara: „Hvað er að þér hættu.“ En það var bara þögn. Nema eftir á hlupu þau á eftir honum. Það gerði enginn neitt. Ég tók bara barnið mitt, fór út í bíl og keyrði heim til mömmu. Hún sagði mér að fara upp á slysó, sem ég gerði, það voru teknar myndir og áverkaskýrsla og fór upp á lögreglustöð og gaf skýrslu þar. Lögreglan sagði við mig að þetta væri ekki nóg til að standa í einhverju kærudæmi.“

Fór í fangelsi

Það var ekki fyrr en þriðja konan kærði barnsföður hennar fyrir ofbeldi sem hann fór í fangelsi.

„Það er hræðilegt að hlutirnir hafi þurft að ganga svona langt. Þarna er ég með áverka og vitni en samt ekki nóg til þess að kæra. Síðan fer næsta sem hann beitir ofbeldi, kærir og fær sömu svör. Síðan fer sú þriðja og kærir. Þarna er þetta búið að ganga á í mörg ár og allir vita af þessu, allir hvísla um þetta en enginn gerir neitt. Hversu margar á hann að berja til þess að fá dóm?“

Margrét rifjar upp þegar hún sagði syni sínum frá því að pabbi hans væri kominn í fangelsi.

„Þetta var á sumum samfélagsmiðlum, fólk var að tala þegar pabbi hans fór í fangelsi. Þannig ég endaði á því að segja honum það, hann sagði: „LOL á hann.“ Hann sagði líka: „Hann er líka vondur.“ Og ég sagði: „Já honum líður ekki vel í hjartanu sínu.““

Þú getur horft á þáttinn í heild sinni á Patreon-síðu Eigin Kvenna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta