fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Móðir Örnu er með ólæknandi krabbamein – Óraunverulegt fyrir ári síðan en blákaldur veruleikinn í dag

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 11. janúar 2021 13:41

Krabbameinsfrumur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögfræðingurinn Arna Pálsdóttir birti í dag pistil á Vísi þar sem hún talar um dauðann og krabbamein móður sinnar. Arna byrjar pistilinn á að útskýra hvernig móðir hennar kom inn í lífið hennar.

„Foreldrar mínir skildu árið 1987 þegar ég var tveggja ára. Eftir skilnaðinn bjó ég hjá pabba sem á þeim tíma þótti nokkuð merkilegt. Það var svo kvöld eitt í október það sama ár að allt breyttist. Pabbi kynntist konu sem lítið vissi þá að væri að fara að eignast tveggja ára gamalt barn. Þau hittust í Leikhúskjallaranum. Pabbi stóð við barinn með tvo glös af campari. Hann var ekki að kaupa fyrir tvo, barinn var bara að loka og hann ætlaði ekki að verða þurr í hálsinum,“ segir Arna um þessi fyrstu kynni pabba hennar og mömmu.

Arna ólst upp hjá pabba sínum og mömmu, þeirri sem hann kynntist í Þjóðleikhúskjallaranum. „Ég þekki ekkert annað en að eiga tvær mömmur. Það var í raun ekki fyrr en ég var byrjuð í grunnskóla að ég áttaði mig á því að það ættu ekki allir tvær mömmur!“ segir hún.

„Ég man ekki eftir því þegar við mamma kynntumst en það var fyrir löngu skrifað í skýin að við myndum verða mæðgur, þó það væri ekki á hinn hefðbundna hátt. Þá vil ég meina að ég hafi alltaf verið besta barnið hennar, það hafi sýnt sig snemma því hún þurfti ekki einu sinni að hafa fyrir því að fæða mig.“

„Ég er sek um það sama“

Arna talar því næst um krabbamein móður sinnar en um er að ræða krabbamein á fjórða stigi, ólæknandi krabbamein. „Við fengum þessar fréttir fyrir rúmu ári. Læknirinn vildi ekki tala mikið um lífslíkur en fleygði þó fram á einhverjum tímapunkti fjórum árum (give or take). Langt inn í árið 2020 var hún mjög brött. Það var engin leið að sjá að þessi kona væri með lífshættulegan sjúkdóm. Þetta var því frekar óraunverulegt. Var þetta ekki bara einhver misskilningur?“

Sjúkdómur móður hennar hefur nú ágerst hratt, hraðar en búist var við. „Það sem var óraunverulegt fyrir ári síðan er blákaldur veruleikinn í dag. Í gegnum síðasta ár hafa hugsanir um lífið og dauðann verið eins og hálfgert undirspil í tilverunni. Léleg lyftutónlist sem maður neyðist til að sitja undir á meðan maður ferðast á milli hæða,“ segir Arna.

„Þessi tími hefur verið mikill skóli. Dauðinn (köllum hann Pétur, það er þægilegra) er órjúfanlegur partur af lífinu. Við eigum það þó til að leggja okkur fram við að virða hann af vettugi og veigra okkur við að hugsa um hann því mikið óskaplega er hann óþægilegur. Ég er sek um það sama, ég er stundum ekkert svo viss um að ég muni deyja, nokkurn tíman.“

„Ég geri þetta í vor“

Arna heldur áfram að tala um dauðann, eða Pétur eins og hún kallar hann í pistlinum. Hún segir að lífið væri ekki það sem það væri án Péturs. „Hann er stóra samhengið. Hann minnir okkur á að lífið er takmörkuð auðlind og að það er ekki sjálfgefið að vera á lífi. Það er svo okkar að gefa lífinu, á meðan við höfum það, innihald,“ segir hún.

„Tilveran er á svo miklum hraða. Við höfum ekki tíma til að gera allt sem við þurfum að gera. Þannig sláum við á frest því sem hefur ekki skiladag. Til dæmis að heyra í mömmu eða ömmu bara til að spjalla, heimsækja afa, segja við systkini okkar og vini hvað þau eru manni mikils virði. Þegar við erum svo komin með hnút í magann af móral hugsum við – ég geri þetta þegar þessari vinnutörn líkur eða þegar búið er að klára framkvæmdirnar í forstofunni. Ég geri þetta í vor!“

„Það er kannski ekki alslæmt að hugsa stundum til Péturs“

Arna segir að Pétur ákveði þegar samverustundirnar verða ekki fleiri. „Dregur línu í sandinn, hingað og ekki lengra. En hann getur aldrei tekið af okkur það sem við áttum með þeim sem við missum, innihaldið sjálft. Pétur er í raun ekkert merkilegur. Lífið er merkilegt. Tíminn sem við fáum að njóta og orðin sem við fáum að segja,“ segir hún.

„Það er kannski ekki alslæmt að hugsa stundum til Péturs. Hann mun koma til okkra allra, þetta er bara það sem hann gerir karlanginn. Eins og hann er óþolandi þá minnir hann mann á að hlúa að innihaldinu. Því sem skiptir máli.“

„Lífið er fallegt. Lífið er hérna. Lífið er núna“

Arna botnar pistilinn með því að benda á að allir eigi eftir að deyja. „Ef þú ert að lesa þennan pistil þá munt þú deyja (vonandi ekki úr leiðindum samt). Við munum nefnilega öll deyja. Geymum ekki ósögð orð. Samvera með ástvinum er það dýrmætasta sem við eigum,“ segir hún.

„Mamma á afmæli í dag. Hún er 57 ára. Ég hlakka til að halda upp á daginn með henni. Lífið er fallegt. Lífið er hérna. Lífið er núna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta