Alltaf má treysta íslenskum tísturum til að finna spauglegu hliðarnar á lífinu, í bland við samfélagsádeiluna sem birtist einnig á þessum vettvang. Hér eru nokkur stórgóð tíst sem eru lýsandi fyrir vikuna sem leið eða almennt bara of hress til að sleppa því að minnast á þau.
Já, Gunnar hérna á Viljanum. Ég er með spurningu fyrir Þórólf. Væri ekki betra að skima færri og þá værum við með færri smit?
— gunnare (@gunnare) September 18, 2020
75 smit, skítaveður og nú þetta. Sé ykkur 2021. pic.twitter.com/QQ79FfJl3Q
— Stefán Óli Jónsson (@St_Oli) September 19, 2020
Kæra dagbók. Í dag tók ég meðvitaða ákvörðun um að leyfa hundinum að klára að éta æluna sína upp af gólfinu svo að ég þyrfti minna að þrífa.
Bugun: 12/10.
— Sólveig (@solveighauks) September 14, 2020
Pabbi, ég kann pin númerið að kreditkortinu þínu.
– Já er það?
Já en hafðu ekki áhyggjur. Ég segi engum.
– Það er nú gott.
Nema að ég verði pyntaður. Þá segi ég það strax. Ég er bara tíu ára.
– Akkúrat.
— €irikur Jónsson (@Eirikur_J) September 14, 2020
Braut á mér úlnliðinn í fyrradag, fór í aðgerð í gær og svo mína þriðju sóttkví í ár, í gærkvöldi. Og greindist svo með COVID í dag.
Þetta er samt ekki eins slæmt og nýja Þjóðleikhúslogoið.
— ingaausa (@ingaausa) September 17, 2020
Ætlaði að gefa blóð og get sagt ykkur að þetta geri ég aldrei aftur. Endalaust af heimskulegum spurningum, vanþakklætið algjört og svo vísuðu foreldrar hans mér úr fermingarveislunni í þokkabót.
— Arnar (@ArnarVA) September 18, 2020
Æ, fokk af hverju fór ég á þennan kareókí-bar á Klapparstígnum á föstudaginn? pic.twitter.com/FP5Zp0URQ2
— Bergþór Jónsson (@beggidotcom) September 18, 2020
Borgarlína. https://t.co/WXJFDKXC2j
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) September 17, 2020
Fyrir síðustu kosningar fékk þrítugur maður símtal frá Miðflokknum. Erindið var að spyrja HANN hvort konan hans væri til í að taka sæti á lista flokksins. Það gengi nefnilega alveg bölvanlega að fá konur um borð. Ekkert lýsir betur tímaskekkjunni sem Miðflokkurinn er.
— Guðmundur Gunnarsson (@gummigunnars) September 17, 2020
Þessi frágangur er of mikið fyrir mig. Hver hannaði þetta hús og hver sá um uppsteypuna? Hvernig umber Kári þetta? #arkitektatwitter pic.twitter.com/wdLTMLrir5
— Guðmundur K. Jónsson (@gudmundur_kr) September 17, 2020
Rólegur Víðir pic.twitter.com/25RCXYvKri
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) September 17, 2020
VG er ónýtt brand. Það verður ekkert hægt að rebranda það. Þetta er búið. Nú þarf að gera eitthvað nýtt.
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) September 17, 2020
Að segja sig úr þingflokki VG? Mæli með. 👇🍀https://t.co/k1mS1KT7vm
— Andrés Ingi (@andresingi) September 17, 2020
Samtal á málfræðiheimilinu:
Foreldri: Er ekki "y" í systir?
Barn: Nei. Ekki lengur.1-0 fyrir unga fólkinu.
— Líf Magneudóttir (@lifmagn) September 16, 2020
Eg er 1/4 íslendingur ef ég væri með dökka húð brún augu svartt hár hefði líf mitt og ferill orðið það sama og það er í dag hefði eg verið samþyktur ?
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) September 17, 2020
sæll vinur viltu bróka þig sjálfviljugur eða þarf ég enn eina ferðina að gera það fyrir þig hmmm þitt val vinur https://t.co/IqGclCkA5l
— Dagur Hjartarson (@DagurHjartarson) September 14, 2020
ætli einhver séu búin að færa henni barnasáttmálann? pic.twitter.com/cWNYaxZFs3
— Brynjar (@undarlegt) September 11, 2020
Sigríður Björk, Ríkislögreglustjórinn með fokk ofbeldi húfuna í profile, ætlar að senda undirmenn sína af stað í fyrramálið að vísa fjölskyldu með fjögur börn úr landi. Bara að vinna vinnuna sína, náttúrulega. pic.twitter.com/7JxLyCMsfc
— 🌏🌹 óskar steinn 🌹🌍 (@oskasteinn) September 15, 2020
Ég er kominn aftur hingað pic.twitter.com/RM7BHpXfez
— Siffi (Drippa Harðarson) (@SiffiG) September 17, 2020
Hvernig ætli sálarástand það skapi að vera alltaf kenndur við búðina sem fyrrverandi eiginkona manns hefur rekið í á annan áratug með nýja, yngri og heitari manninum sínum. Það er eflaust nærtæk lausn að varpa vandanum á skipulagsmál í Reykjavík.
— Sverrir (@sverrirbo) September 17, 2020
Jæja þá er maður búinn að sitja sveittur við hönnun á nýju skjaldamerki fyrir Ísland pic.twitter.com/ethZB3umSG
— Pétur M. Urbancic (@PeturMarteinn) September 17, 2020
Siffi G – Reply guy og kona á Twitter.
Ákveðið jarm komst á nokkuð flug á Twitter í vikunni. Jarm er einnig þekkt sem meme. Jarmið samanstendur af mynd sem er búið að merkja þrjá leikmenn –
reply guy – Sem er karlmaður sem skrifar athugasemdir við færslur eða tíst hjá konu sem hann þekkir lítið eða ekki neitt en lætur samt eins og þau séu aldargamlir vinir.
Kona á Twitter – útskýrir sig sjálft.
Siffi G – Íslenskur tístari og blaðamaður DV verður að viðurkenna að hann skilur ekki alveg hvernig Siffi G kemur við sögu.
— Bjarki (@BjarkiStBr) September 16, 2020
— Siffi (Drippa Harðarson) (@SiffiG) September 15, 2020
Þetta tók mér 2 tíma að búa til. pic.twitter.com/71zbAAujYP
— Mattý ✨🪐 (@nei_takk) September 16, 2020
— Örn Guðjónsson (@__gorn) September 16, 2020
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) September 16, 2020
"Ég held að við komum ekki í skólann á morgun!" -12 ára flóttastúlka sem bíður þess að vera rekin úr landi eftir smá og hefur tapað allri von. Það er í alvörunni fólk í þeirri stöðu að geta haldið framtíð hennar og draumum á lífi en þau vilja það ekki. Það er ógeðslegt 🤮
— Sema Erla (@semaerla) September 14, 2020
þú ert lítil bitch ass veira og þessari mynd er droppað á insta hvað geriru? pic.twitter.com/qyFwcRIW0N
— Tómas (@tommisteindors) September 16, 2020
Þulur: Þekkir þú þetta stef?
Ég: Ehh… aahh… (rembi rembi rembi) Aaahh…
Þ: Þetta er mjög létt. Fræg sería.
Ég: Ehh, þetta er eflaust ekki í sniðmengi minu sem ég horfi á (plís ekki spyrja nafn míns).
Þ: Fáum næsta hlustanda
Ég: (Hjúkk)
Næsti: Breaking Bad!
Þ: Það er rétt
Ég: pic.twitter.com/IlQ2IaiRuo— Ragnar Eyþórsson (@raggiey) September 17, 2020
Þetta tíst vekur mig til umhugsunar. Ég hef á tilfinningunni að þetta sé rétt. Finnst þetta sannfærandi tíst. Ákveðið en ekki dónalegt. Ég þarf að gera eitthvað í mínum málum. Mun axla ábyrgð. Lofa ekki breytingu fyrir næsta þátt en mjög fljótlega. #9cm #vikan https://t.co/ivsiWUWfeW
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) September 18, 2020
fór í bakarí áðan. Sonur minn (þriggja ára) fór með og heimtaði að vera í kisubúning. Stúlkan í bakaríinu brosti til hans og spurði: “Ert þú svona fín kisa?”
Hann svaraði: “Pabbi minn er með Covid”
Ég er samt ekki með covid.— Gunnar P. Hauksson (@gunnarph) September 19, 2020
Það er mjög viðeigandi þegar menn sem heita Gamalíel ná háum aldri: pic.twitter.com/KTGvJpErc4
— Ármann Jakobsson (@ArmannJa) September 19, 2020