fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Aron Már slær í gegn í myndbandi hjá heimfrægum áhrifavaldi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 30. mars 2020 10:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jenna Marbles er ein skærasta stjarnan á YouTube. Hún er með yfir 20 milljón fylgjendur á miðlinum og fá myndbönd hennar yfirleitt um tvö til fimm milljón áhorf.

Íslenski leikarinn og áhrifavaldurinn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aron Mola, er óvæntur gestur í nýjasta myndbandinu frá Jennu Marbles. Í því myndbandi horfir Jenna á nokkur af uppáhalds TikTok-myndböndunum sínum. Myndbandið hefur fengið yfir 3,1 milljón áhorf síðan á fimmtudaginn.

Eitt af þeim myndböndum er myndband Aron Mola þar sem hann er að drekka boost sem sullast yfir á andlitið hans.

Jenna og Julian, kærasti hennar, horfa á myndbandið og skella upp úr. Julian spyr svo:  „Hvaða hljóð var þetta?“ og vísar í þegar Aron sagði „æj“ í lok myndbandsins.

Horfðu á atriðið í spilaranum hér að neðan.

DV heyrði í Aroni sem var meðvitaður um óvænt gestahlutverk sitt í myndbandi Jennu.

„Þetta er bara geggjað, ótrúlega gaman,“ segir hann.

Myndbandið hans á TikTok er komið yfir 5,8 milljón áhorf. Aron segir að honum finnst TikTok mjög skemmtilegur miðill.

„En maður er enn bara að læra á hann, svolítið flókið,“ segir hann.

Þú getur fylgst með Aroni á TikTok undir @aronmolaofficial

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta