fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Frægustu stjörnur Íslands syngja um fjárhagserfiðleika Emmsjé Gauta – „Enginn hefur haft það verra en ég“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 1. desember 2020 08:29

Emmsjé Gauti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rapparinn vinsæli Emmsjé Gauti hefur undanfarin jól verið vanur að halda geysivinsæla jólatónleika, Jülevenner. Vegna kórónuveirunnar verða tónleikarnir ekki haldnir í ár en hins vegar ákvað Gauti að gefa út plötu þess í stað.

Í gær gaf hann út myndband á YouTube við eitt laganna. Lagið er byggt á vinsæla söfnunarlaginu Hjálpum þeim með Hjálparsveitinni. Í lagi Gauta syngja margar af skærustu stjörnum Íslands um mikilvægi þess að hjálpa, hjálpa Gauta. Gauti hefur nefnilega ekki getað haldið tónleika á öllu árinu og þess vegna hefur hann ekki náð að halda uppi lífstílnum sínum. Í nóvember var til að mynda greint frá því að hann þyrfti að skila lúxusbílnum sínum.

Eins og áður segir eru margar frægustu stjörnur Íslands í þessu myndbandi. Páll Óskar, BRÍET, Young Karin, Rúrik Gíslason, Svala Björgvinsdóttir, Helgi Björns, Hipsumhaps, Gísli Marteinn, Sigga Beinteins, Jakob Frímann, Ragnhildur Steinunn, Herra Hnetusmjör, Jón Jónsson, Friðrik Dór, Jóhanna Guðrún, Steindi Jr., Harmageddon, Valdimar, Aron Can, Salka Sól, Selma Björnsdóttir, Gissur Páll, Gunnar Nelson, Steve Dagskrá og Birgitta Líf koma öll fyrir í myndbandinu.

„Ég veit að mörg ykkar hafa haft það erfitt þetta árið en enginn hefur haft það verra en ég. Líkamsræktin sem ég fæ frítt í er lokuð og ég er kominn á bíl sem þarf að stinga lykli í og ég er ekki einu sinni með hita í stýrinu lengur,“ segir Emmsjé áður en stórskotaliðið hefur sönginn.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem um ræðir:

Þrátt fyrir að allar stjörnurnar hafi komið saman til að syngja um að það þurfi að hjálpa Emmsjé Gauta þá mun peningurinn allur renna til Barnaspítala Hringsins. Fallegt átak hjá Gauta og svo sannarlega í anda jólanna. Hér fyrir neðan má sjá reikningsupplýsingar ef fólk vill leggja söfnuninni lið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta