fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Steinunn Ólína færir út kvíarnar – Komin í kjötbollubransann

Tobba Marinósdóttir
Föstudaginn 13. nóvember 2020 22:30

Steinunn Ólína er engri lík. Mynd: Stefán

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er þúsundþjaladrottning. Svo virðist sem hún geti allt. Leikið, sungið, skrifað bækur og blöð og ræktað grænsprettur á snjallbýli. Nýjasta viðbótin er svo kjötbollur sem hún þróaði með Norðlenska og stefnan er sett á að bæta vegan vörum í úrvalið.

Fyrsta eldhúsminning Steinu, eins og hún er kölluð, er úr eldhúsinu hjá ömmu Ólínu á Daðastöðum í N-Þingeyjasýslu. „Þar steikti hún kleinur og við frændsystkinin kepptumst við að borða þær jafnharðan.“
Steina er er sjálf mikill listakokkur og sérlega lunkin í dressingum og að láta einfalda samloku líta út eins og Bretlandsdrottning sé á leið í kaffi.Hún segist hafa kennt sér sjálf að elda að einhverju leyti. „Ég byrjaði að elda mat bara smástelpa af hreinni nauðsyn, því ég var og er matargat. Mamma var rauðsokka og lagði ekkert upp úr matargerð eða heimilishaldi yfirleitt, en báðar ömmur mínar voru listakokkar og afbragðshúsfreyjur.

Föðuramman húsmæðraskólagengin hreppstjórafrú, sem eldaði allan klassískan, íslenskan heimilismat og móðuramman fín borgardama, sem eldaði af listfengi undir greinilegum áhrifum frá frændum okkar Dönum. Ég lærði auðvitað af því að fylgjast með þessum ólíku konum að störfum í eldhúsinu, en fyrstu skrefin steig ég ein í eldhúsinu heima hjá pabba og mömmu við mikla ánægju og hvatningu beggja.“

Óvenjulegt og fallegt

Það þarf því engan að undra að leikkonan sé framúrskarandi með svuntuna og leggi mikla hugsun í samsetningu hráefna. „Ég er mislynd með afbrigðum og eldamennskan eftir því. Stundum vil ég bara eitthvað ótrúlega einfalt, steiktan fisk og kartöflur, en stundum vil ég verja tíma í eldhúsinu og fá þá næði til að galdra eitthvað nýtt og róa hugann í leiðinni.
Matseld er mitt jóga. Þá finnst mér gaman að leika mér með liti og bragð, leiða saman eitthvað óvenjulegt, en umfram allt að gera það bragðgott og fallegt fyrir augað.  Mér finnst ekkert leiðinlegra en að borða eitthvað sem er ólystugt og hent saman í hugsunarleysi. Ég vil oft raða á diska fyrir þá sem ég elda fyrir, eitthvað sem ekki allir skilja, en fyrir mér þurfa hlutirnir að vera á ákveðnum stað á diskinum til að matseldin meiki sens. Ég er búin að búa þetta til og veit fyrir fram hvernig ég hef í huga að hlutir spili saman.“

Steinunn Ólína á fjögur börn sem öll stefna í að verða vel fær í eldhúsinu. „Öll geta þau bjargað sér í eldhúsinu og elstu dæturnar tvær fullkomlega sjálfbjarga og rúmlega það. Elsta mín er listakokkur og sú næstelsta á góðri leið með það líka. Litlu stýrin eru styttra komin, en kunna meira en þau vilja uppi láta því það er svo þægilegt að láta aðra elda fyrir sig.“

Bollurnar hennar Steinu hafa slegið í gegn. Mynd Stefán

Velja sér land og láta vaða

Aðspurð um besta eldhúsráðið er Steina ekki að skafa utan af því. „Nota eldhúsið og elda sjálfur. Kvöldmatur með fjöl-skyldunni er fastur punktur fyrir alla og helst að láta alla gera eitthvað. Kvöldmatartíminn er verðmæt stund, jafnvel þótt það kosti mig stundum tvöfalda matseld til að koma á móts við óþroskaða og síviðfúlsandi bragðlauka minnsta heimilisfólksins. Ég hvet fólk líka til að lesa matreiðslubækur til gagns og vera óhrætt við að prófa sig áfram. Þegar ég tala um að lesa matreiðslubækur til gagns, þá á ég ekki við að þú þurfir að klafabinda þig í einhverja uppskrift og fylgja henni nákvæmlega, heldur frekar að sjá í þeim möguleikana til að skapa eitthvað nýtt sjálfur. Við þurfum öll nauðsynlega á því að halda að vera skapandi og eldhúsið getur verið slíkur leikvangur fyrir alla. Núna í þessu bannsetta COVID getur eldhúsið verið griðastaður til sköpunar, nú er upplagt að kynna sér nýjar eldunaraðferðir, prófa að nota ný krydd. Velja land af handahófi á atlasnum og finna uppskrift þaðan og leika sér. Tónlist frá sama landi getur verið hugvíkkandi og skemmtilegur undirleikur við matseldina.“

 

Hugmyndaspretta

Eiginmaður Steinu, Stefán Karl Stefánsson heitinn, stofnaði snjallbýlið Sprettu 2015, en í dag er það rekið af Steinu og Soffíu Steingrímsdóttur. Spretta ræktar grænsprettur (Microgreens) sem eru eru fyrstu lauf og stilkar jurta-og grænmetisplantna. Grænsprettur eru sneisafullar af næringarefnum og margar þeirra innihalda 4-6 sinnum hærra magn af vítamínum og andoxunarefnum en fullvaxta plöntur og eru því sannkallað ofurfæði.

Steina segir reksturinn ganga ágætlega en róðurinn sé þungur líkt og víða annars staðar. „Spretta gengur ágætlega en auðvitað er COVID bölvanlegt fyrir okkur, eins og mörg lítil fyrirtæki. Veitingastaðir eru okkar stærstu viðskiptavinir og þeir berjast nú í bökkum eins og allir vita og við finnum tilfinnanlega fyrir því. En við seljum svolítið í búðum af sprettum, í Heimkaup, Krónunni og í Melabúðinni og svo er samstarfið við Norðlenska mikil búbót og frábært fyrir okkur að fá að þróa matvöru í samstarfi við svo stóran matvælaframleiðanda. Og við erum með ýmislegt á prjónunum í samstarfi við þá, mjög spennandi.“

 

Minna kjöt og meira grænt

Samstarfið sem hún vísar í felst í vöruþróun sem inniheldur spretturnar vinsælu. „Norðlenska kom til okkar og hafði hug á að vinna með litlum framleiðanda að nýjum vörutegundum. Mér finnst frábært að svo stór framleiðandi á kjötvörum átti sig svo klárlega á óskum samtímans, það er óskum um minni kjötneyslu og meira af grænni fæðu. Þetta er virðingarvert og ekki oft sem risar af þessu tagi hugsa sér að vinna að markmiðum sem eru kannski ekkert augljóslega samræmanleg þeirra eigin framleiðslu. En Norðlenska hefur sannarlega sýnt okkur að hugur fylgir máli og bollurnar eru alveg eins og við vildum gera þær. Hreint gæðahakk, fullt af sprettum og salti og pipar og ekkert ofnæmisvaldakjaftæði. Bara holl prótein- og vítamínrík súperfæða. Við erum svo að þróa fleiri vörur með Norðlenska og alls ekki bara kjötvörur, því við erum auðvitað að hlusta eftir því að fólk vill stærra úrval af veganvörum og þar eru svo ótrúlega mikil tækifæri til að bæta vöruval á innlendum markaði.“

 

Tengdamömmubollur

Steina segir Stefán sjálfan hafa verið mikið fyrir kjötbollur, en hún hafi þó ekki hætt sér í samanburð við tengdamömmubollurnar. „Stefán var alæta á mat, en honum þóttu bollurnar hennar Huldu tengdamömmu bestar. Maður keppir ekki við heimagerðar tengdamömmu bollur, þar á maður ekki séns í helvíti. Það er mitt húsráð til ungs fólks í eldhúsinu. En kjötbollurnar sem við hjá Sprettu erum að framleiða með Norðlenska eru geggjaðar engu að síður og ég er mjög stolt af þeim. Þær eru líka ferskvara svo að ég treysti þeim til að sparka frystum systrum þeirra yfir á varamannabekkinn,“ segir Steina að lokum og ítrekar að á erfiðum tímum megi ekki vanmeta þær ljúfu samverustundir sem eldhúsborðið veitir.

Steinunn Ólína slær í gegn í eldhúsinu,
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta