fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Faðir Aðalsteins svipti sig lífi – „Ég hugsa nánast um þetta á hverjum einasta degi“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 22. september 2020 19:00

Mynd: Hringbraut

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hugsa nánast um þetta á hverjum einasta degi“, segir Aðalsteinn J. Magnússon um lát föður síns sem tók eigið líf fyrir 23 árum síðan.

 Aðalsteinn, sem er í viðtali hjá Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld á Hringbraut, kom að 78 ára föður sínum lífshættulega slösuðum, þegar faðir hans hafði reynt að fremja sjálfsvíg á heimili sínu sem olli því að hann lést skömmu síðar.

„Hann hafði greinilega skipulagt þetta, orðinn fullorðinn maður og einangraður og maður áttaði sig ekki á því hversu einangraður hann var orðinn og það er alveg víst að hann hafði skipulagt þetta í svolítinn tíma, bara í þögn,“ segir Aðalsteinn.

Læknir sem mætti með sjúkrabílnum stöðvaði sjúkraflutningamenn í að endurlífga föður Aðalsteins sem enn andaði en hann hafði skotið sig í höfuðið. Aðalsteinn segist mjög sáttur við þá ákvörðun læknisins á vettvangi að stöðva endurlífgun.

Aðspurður hvort hann sé sannfærður um að faðir hans hafi í raun viljað deyja, segir Aðalsteinn: „Ég er alveg sannfærður.“

Aðspurður hvort mögulega hefði verið hægt að veita föður hans dánaraðstoð þar sem sú leið sem faðir hans valdi er mjög harkaleg, segist Aðalsteinn telja svo vera. „Maður fer í gegnum hugann og hugsar: „Hefði maður getað gert eitthvað, hefði verið hægt að ýta honum í sund og hefði … en ég er viss um að hann hundrað prósent gerði það sem hann vildi gera“.

Fjallað hefur verið undanfarið um dánaraðstoð í 21 og málið skoðað frá ýmsum hliðum en nýlega kom út skýrsla heilbrigðisráðherra um dánaraðstoð, eftir beiðni frá nokkrum þingmönnum um það.

Þegar rætt er um dánaraðstoð leiðir það hugann m.a. að sjálfsvígum. Sjálfsvíg leggur þungar byrðar á nánustu aðstandendur og veldur þeim og nánustu vinum miklum sárauka og sorg.

Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Ríkislögreglustjóra hafa 30 útköll verið vegna sjálfsvíga fyrstu átta mánuði ársins. Í fyrra voru útköllin á sama tíma alls 18 talsins og 23 þar áður 2018.

Þátturinn er á dagskrá Kl.21 í kvöld á Hringbraut og svo endursýndur.

Sjá nánar á vef Hringbrautar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta