Trommuleikarinn Einar Scheving, sem hefur verið talinn einn kynþokkafyllsti piparsveinn landsins, er genginn út. Hann hefur fundið ástina í örmum Arnhildar Jóhannsdóttur, sem meðal annars hefur unnið í tískuversluninni KronKron og sem barþjónn á Kex Hostel. Hamingjan ljómar í augum Arnhildar og Einars á myndum sem trommuleikarinn birtir á Facebook af parinu að njóta lífsins í París. Taka þau sig vel út saman, en í grein á DV um kynþokkafyllstu menn Íslands sagði meðal annars um Einar: „Svona eins og smáfríðari útgáfa af Ingvari E. en með sama sjarmann.“ Talsverður aldursmunur er á parinu, Arnhildur er 25 ára og Einar 46 ára, en eins og flestir vita þá spyr ástin ekki um aldur.