fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Verslunarmannahelgin 2019: Hvað kostar þetta allt saman? Hvar verður mesta fylleríið?

Fókus
Föstudaginn 2. ágúst 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvert áttu að fara um verslunarmannahelgina?
Hvernig verður stemningin?
Hverjir verða hvar?
Hvað kostar þetta allt saman?
Hvar verður mesta fylleríið?
En hvar er líklegt að finna ástina?

Fókus er með puttann á púlsinum og færir ykkur allt það helsta sem er að gerast um verslunarmannahelgina.

 

1. Innipúkinn

Hvar: Bryggjan brugghús og Messinn í Reykjavík.
Hverjir skemmta: Between Mountains, Blóðmör, Dj Flugvél & geimskip, Frikki Dór, Hildur, Jónas Sig, Moses Hightower, Sturla Atlas og fleiri. Hvers er sárt saknað: Unun.
Stemning: Þau sem nenna ómögulega að standa í því að tjalda, pissa úti og hressa upp á tveggja daga gamlan landa með hálsbrjóstsykri fjölmenna á Innipúkann og drekka sinn bjór í friði, laus við leiðindi og veðurofsa.
Hverjir eiga að mæta: Hipsterar og hlustendur Rásar 2.
Hverjir eiga ekki að mæta: Bolurinn, fjölskyldufólk, fellihýsaeigendur og þeir sem elska teknó.
Verð: Miðar fást á tix.is og er verð 3.990 til 6.990 krónur – allt eftir því hvað þú vilt vera lengi á svæðinu. Svo náttúrulega leigubíll heim – vonandi býrðu ekki í Mosfellsbæ – bæ, bæ tíuþúsund kall aðra leiðina!

 

 

2. Þjóðhátíð í Eyjum

Hvar: Herjólfsdalur í Heimaey (dö).
Hverjir skemmta: Bjartmar, Herra Hnetusmjör, Huginn, Svala Björgvins, Sverrir Bergmann, Stjórnin, Páll Óskar, Á móti sól, Jón Jónsson og fleiri.
Hvers er sárt saknað: Helga fokkíng Björns.
Stemning: Þeir sem fíla að vera í sömu lopapeysunni heila helgi, sofa ekkert, smakka lunda, rífast við heimamenn og öskra úr sér lungun við almúgapopp mæta.
Hverjir eiga að mæta: Bolurinn, Eyjapeyjar og -meyjar og fólk sem ætlar að hrynja í það.
Hverjir eiga ekki að mæta:
Fólk sem á ekki stígvél og borgarbörnin sem kunna ekki að tjalda. Og já, þeir sem hata gítarpartí þar sem þjóðhátíð er bara eins og eitt, ofurlangt gítarpartí.
Verð: Það kostar 1.600 kall aðra leið með Herjólfi og svo er hátíðarpassinn á 25 þúsund kall.

 

 

Ljósmynd: DV/Hanna

3. Unglingalandsmót UMFÍ

Hvar: Höfn í Hornafirði.
Hverjir skemmta: Úlfur, Úlfur, Salka Sól, Daði Freyr, Bríet og fleiri. Svo er auðvitað keppt í öllu og engu – allt frá brennibolta til pílukasts.
Hvers er sárt saknað: Bjarna Ben að keppa í kökuskreytingum.
Stemning: Heilsusamlegt fjör fyrir alla þá sem vilja eyða gæðatíma með fjölskyldunni, hlæja og horfa á misgáfulegar keppnisíþróttir.
Hverjir eiga að mæta: Fjölskyldufólk, keppnismanneskjur og flipphausar.
Hverjir eiga ekki að mæta: Drykkjuboltarnir og fýlupúkarnir.
Verð: Tjaldsvæðið er ókeypis fyrir mótsgesti og fjölskyldur þeirra en greitt er fyrir afnot af rafmagni. Skráningargjald er 7.500 krónur.

 

 

4. Neistaflug

Hvar: Neskaupstaður.
Hverjir skemmta: Leikhópurinn Lotta, Einar Ágúst, Matti Matt, Papar, Mannakorn, Daði Freyr, Hlynur Ben og fleiri.
Hvers er sárt saknað: Klámfólkið sem var rekið af hótelinu.
Stemning: Það er erfitt að festa fingur á stemninguna því það er svo margt í boði sem hentar alls konar fólki – hlaupurum, börnum, sögusjúklingum og kvikmyndanördum.
Hverjir eiga að mæta: Ef þú nennir að keyra og langar í eitthvað af alls konar þá mætir þú í Neskaupstað.
Hverjir eiga ekki að mæta: Bílveikir.
Verð: Nóttin á tjaldsvæðinu kostar 1.200 krónur.

 

 

5. Sæludagar KFUM og KFUK

Hvar: Í Vatnaskógi.
Hverjir skemmta: Páll Óskar, Lalli töframaður, DJ Ljómi og alls konar prestar og sérfræðingar með ýmis erindi.
Hvers er sárt saknað: Davíðs Þórs með Radíus-grín með trúarlegu ívafi.
Hvernig verður stemningin: Hér eru öll vímuefni stranglega bönnuð og því er einblínt á heilbrigt umhverfi þar sem fólk getur ræktað sinn innri mann í friði. Hverjir eiga að mæta: Edrú liðið og þeir sem eru orðnir þreyttir á látum og stressi.
Hverjir eiga ekki að mæta: Segir það sig ekki sjálft?
Verð: Ókeypis er fyrir 6 ára og yngri, 3.000 krónur fyrir 7 til 12 ára og 6.000 krónur fyrir 13 ára og eldri.

 

 

Herra Hnetusmjör.

6. Síldarævintýri

Hvar: Siglufjörður.
Hverjir skemmta:
Herra Hnetusmjör, DJ Egill Spegill og fleiri.
Hvers er ekki saknað: Smálánakónganna sem skráðu starfsemi sína í ómerktu húsi í bænum.
Hvernig verður stemningin: Þetta er ein af þekktustu hátíðum landsins og má búast við því að heldur verði meira af eldra fólki en yngra, í góðu stuði að rifja upp gamla tíma.
Hverjir eiga að mæta: Þeir sem muna eftir síldarævintýrinu og þeir sem elska að prjóna.
Hverjir eiga ekki að mæta: Unglingar sem þyrstir í ævintýri sem tengist ekki síld:
Verð: Ókeypis inn.

 

 

Mynd: Saga Sig
Mynd: Saga Sig

7. Ein með öllu og íslensku sumarleikarnir

Hvar: Akureyri.
Hverjir skemmta: Leikhópurinn Lotta, Einar Mikael, Svala Björgvins, Rúnar Eff, Rán Ringsted, Stefán Haukur, Ingó Veðurguð, Hvanndalsbræður og fleiri.
Hvers er sárt saknað: Sigmundar Ernis.
Hvernig verður stemningin: Hún er yfirleitt goðsagnakennd stemningin á Akureyri og búast má við að margir hrynji í það á meðan aðrir einbeita sér að því að elta krakkana í alls konar glens (les pirraðir og þreyttir foreldrar).
Hverjir eiga að mæta: Ef þú vilt upplifa flóru af Íslendingum með öllum þeirra kostum og göllum þá mætir þú.
Hverjir eiga ekki að mæta: Þeir sem hafa enga þolinmæði fyrir litlum börnum og fylliröftum.
Verð: Nóttin á tjaldsvæði kostar 2.200 krónur.

 

 

Mynd/Snorri Björn

8. Evrópumeistaramótið í Mýrarbolta

Hvar: Bolungarvík.
Hverjir skemmta: Högni Egilsson, Ásta, Rúnar Breki, Flóni, Þórdís Petra og fleiri.
Hvers er sárt saknað: Eiðs Smára.
Hvernig verður stemningin: Loftið verður fullt af dásamlegri lykt af drullumalli í bland við dass af vínanda og mikið af hlátrasköllum.
Hverjir eiga að mæta: Áhættusæknir orkuboltar sem eru til í að ata sig út í drullu á meðan þeir sparka í tuðru.
Hverjir eiga ekki að mæta:
Fólk sem þolir ekki lífið.
Verð: Kaupa þarf sérstaka miða á ýmsa viðburði og er verð 3.000–14.000 krónur. Miðasala er á tix.is.

 

 

9. Kotmót

Hvar: Kirkjulækjarkoti í Fljósthlíð.
Hverjir skemmta: Kristine Bærendsen, KK, Samuel Ljungblahd og fleiri.
Hvers er sárt saknað: Ellenar Kristjáns.
Hvernig verður stemningin: Kotmótið er bindindismót sem hefur verið haldið í 65 ár og því er stemningin eftir því. Hingað flykkist fólk úr kristnum samfélögum af öllu landinu og skemmtir sér án vímuefna.
Hverjir eiga að mæta: Strangkristið fólk.
Hverjir eiga ekki að mæta: Trúleysingjar.
Verð:
Ekkert kostar á mótið, en rukkað er fyrir tjaldsvæðið – 1.500 fyrir fullorðna, 900 fyrir unglinga en frítt fyrir börn fyrir nóttina.

 

 

10. Útihátíð á Spot

Hvar: Spot, Kópavogi.
Hverjir skemmta: Greifarnir og Siggi Hlö.
Hvers er sárt saknað: Gaursins sem er alltaf með Sigga Hlö en enginn man hvað heitir.
Hvernig verður stemningin: Sveitt, subbuleg og klístruð.
Hverjir eiga að mæta: Bolirnir sem nenna ekki að láta dæma sig fyrir að syngja með Greifalögunum og þeir sem dýrka Sigga Hlö meira en lífið sjálft.
Hverjir eiga ekki að mæta: Allir hinir:
Verð: 3.400 krónur – miðasala á tix.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta