Þriðja og síðasta umferð af áheyrnaprufum fyrir Instagram Íslands var í gær. Þátturinn er sýndur á IGTV hjá Áttan Miðlar.
Sjá einnig: Þessi komust áfram í topp 20 í Instagram Íslands: „Fátt meira sexí en sveitamenn“
Sunneva Einars, Guðrún Veiga og Nökkvi Fjalar skipa dómnefndina. Tólf keppendur hafa nú þegar komist áfram í topp 20. Í gær var klárað að fara yfir keppendur sem komust áfram. Í næsta þætti Instagram Íslands munu áhorfendur geta kosið hver fer áfram í næstu umferð.
Sjá einnig: Áheyrnaprufur Instagram Íslands halda áfram: Þessi komust áfram – „Er þetta tekið upp á ristavél“
@BBQKongurinn
Alfreð Fannar Björnsson, eða Alli, er svo kallaður BBQ kóngurinn. Dómararnir voru hrifnir af Alla og myndunum hans og komst hann áfram í topp 20.
„Hann er geggjaður. Ég segi já við Alfreð Fannar Björnsson, BBQ kóng,“ segir Guðrún Veiga.
@KristinAvon
„Kristín veit alveg hvað hún er að gera sko,“ segir Sunneva. „Hún fær já frá mér bara strax.“
„Já það er klárt mál,“ segir Nökkvi. Kristín komst áfram í topp 20.
@AlliaGust
Guðrún Veiga segist strax vera hrifin af honum því hann er ekki greiddur. Hins vegar segja dómararnir fljótt nei þegar þeir sjá að hann er með 28 þúsund fylgjendur, sem hafa verið keyptir að þeirra sögn.
View this post on Instagram
@GudbjorgEinarsd
Guðbjörg er lögreglukona með brennandi áhuga á innanhúshönnun.
„Hún á bara fullt erindi í þessa keppni það er bara klárt mál,“ segir Nökkvi Fjalar. Guðbjörg komst áfram í topp 20.
@LuisLucas_A
Luis Lucas er dansari. „Fáranlega nettur,“ segir Nökkvi Fjalar.
„Hann kann að [Instagramma] sko,“ segir Sunneva. Dómararnir eru hins vegar ekki hrifnir af því að Luis deilir myndum með tilvitnunum.
Luis komst áfram í topp 20.
View this post on Instagram
@Jon_Magnusson
Eftir að hafa horft á myndband frá Jóni í smá stund og skoðað yfir Instagram-síðuna hans segja dómararnir nei við Jón.
@SvandisThora
Svandís Þóra er bloggari hjá Vynir.is og verslunarstjóri í ísbúðinni Valdísi.
„Mér sýnist þetta ekki vera það sem við erum að leita að,“ segir Sunneva. Svandís komst ekki áfram.
@SamarEzahida
Samar er tvítug og er að læra flugmanninn. Dómararnir eru hrifnir af Samar. „Þetta er snillingur,“ segir Nökkvi Fjalar.
„Ég er hrifin,“ segir Sunneva.
@Stebbi696
Dómararnir eru á báðum áttum varðandi fyrsta myndbandið frá Stefáni. Nökkva finnst það kúl en Guðrún Veiga er hrædd um að börn hermi eftir honum. Hins vegar segja þau bæði já meðan Sunneva situr til hliðar í þessari atkvæðagreiðslu.
Stebbi komst áfram í topp 20.
@Thelma.Rut
Thelma Rut Þorvarðardóttir verður átján ára í júlí. Dómurunum finnst Thelma mikið krútt og komst hún áfram í topp 20.
@VanlifeVikings
Auðunn og Ruth eru með Instagrammið Vanlife Vikings. Þar er hægt að fylgjast með húsbílaævintýrum þeirra um Evrópu.
„Þetta er ógeðslega áhugavert,“ segir Nökkvi Fjalar. Auðunn og Ruth komust áfram í topp 20.