fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Fimm staðir til að finna álfa á höfuðborgarsvæðinu

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 9. nóvember 2018 19:00

Samsett mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meirihluti íslensku þjóðarinnar trúir á álfa, yfirnáttúrulegar verur sem búa í steinum og úti í hrauni. Fram kom í könnun sem DV gerði fyrir 20 árum að 54,4% landsmanna tryðu á álfa og huldufólk, í könnun Háskóla Íslands tæpum 10 árum síðar hafði trúin aukist og trúðu þá 62% á álfa og huldufólk. En hvar eru þessir álfar? Í bókinni Krossgötur – Álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi eftir Bryndísi Björgvinsdóttur og Svölu Ragnarsdóttur er fjallað um þá staði sem talið er að finna megi álfa hér á landi. DV tók saman lista yfir fimm staði á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess þar sem talið er að álfar haldi sig.

 

Merkurgata, Hafnarfirði

Við Merkurgötu stendur stór álfasteinn sem virðist standa úti á miðri götu. Sagan segir að til hafi staðið að brjóta hann niður árið 1937 en það hafi ekki tekist vegna hulduveru sem býr inni í steininum. Járnkarl sem átti að nota til að brjóta hann niður stendur enn upp úr steininum. Álfasteinninn í Merkurgötu er friðaður af Hafnarfjarðarbæ. Merkurgata er á milli Vesturgötu og Vesturbrautar, skammt frá bæjartorginu við verslunarmiðstöðina Fjörð.

 

Smiðjuhóll, Arnarnesi í Garðabæ

Smiðjuhóll stóð suður af gamla Arnarnesbænum en er nú inni á einkalóð. Sagt er að á honum hvíli álög og ef hann yrði sleginn þá myndu bestu mjólkurkýrnar í fjósinu falla niður dauðar. Þrátt fyrir að fjósið og kýrnar séu löngu farnar af Arnarnesinu þá er hann enn vaxinn háum stráum. Sagan segir að breskur sjáandi hafi skoðað hólinn að beiðni íbúa og hafi átt erfitt með svefn eftir að hafa fundið inngang álfanna inn í hólinn. Eins og áður segir er hóllinn á einkalóð og því líklegast best að skoða hann úr fjarlægð, þá einnig til að forðast álög og svefntruflanir.

 

Sauðhóll, Breiðholti í Reykjavík

Samkvæmt fornleifaskrá Reykjavíkur er álfabyggð í hóli við blokkina Vesturberg 2–6 í Breiðholti. Hóllinn er rúmum tíu metrum frá blokkinni og er kallaður Sauðhóll. Blokkin átti að standa þar sem hóllinn er en það var talið óráðlegt vegna álfanna. Skammt frá er grunnskólinn Fellaskóli, hóllinn er mjög grýttur og segir sagan að kennarar við skólann hafi sagt börnunum að hann væri bannhelgur til að koma í veg fyrir að börn meiddu sig við leik.

 

Borgarholt, Kópavogi

Það er ástæða fyrir því að svæðið við Kópavogskirkju er látið í friði en þar er talið að sé blómleg álfabyggð. Sagan segir að þegar Borgarholtsbrautin var lögð hafi Kópavogsbúinn Sveinn Gamalíelsson varað álfana við áður en steinar voru sprengdir í burtu, álfarnir hafi þá fært sig. Álfarnir í Borgarholtinu virðast hrifnari af börnum en fullorðum og er sagt að þeir hafi átt á samskiptum við leikskólabörn.

 

Hamarinn, Hafnarfirði

Hafnarfjörður er sannkallaður álfabær. Fram kom í úttekt sjáandans Erlu Stefánsdóttur, sem hún gerði fyrir Hafnarfjarðarbæ á tíunda áratug síðustu aldar, að þar sé merkilegasta og stærsta álfabyggðin í bænum. Ein elsta frásögnin af staðnum er um Gunnar Bjarnason, bónda í Hamarskoti, sem heyrði söng frá Hamrinum að kvöldi til um jól. Gunnar gekk á hljóðið og fann dyr. Fór hann inn í híbýli álfanna en lét sig fljótt hverfa þegar söngnum lauk. Hamarinn er fyrir ofan Lækinn í Hafnarfirði, við hliðina á Flensborgarskólanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta