fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Varpa ljósi á stefnumótamenningu Íslendinga – „Þú veist þú ert að deita íslenska konu þegar…“

Fókus
Föstudaginn 5. október 2018 16:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

…þú kemst að því á fyrsta stefnumóti að manneskjan er skyld þér í þriðja ættlið. Á YouTube er að finna vinsæla síðu sem heitir Dating Beyond Borders en eins og nafnið gefur til kynna er þar tekið á stefnumótamenningu ýmissa landa.

Í gær var sýndur stuttur þáttur um Ísland og er óhætt að segja að hann hafi vakið athygli.

Þátturinn, sem ber yfirskriftina You Know You Are Dating an ICELANDIC Woman When…, segir á skemmtilegan hátt frá allskonar hlutum sem tengjast íslenskri stefnumótamenningu. Dating Beyond Borders fékk Hrafnhildi Rafnsdóttur til að leika í myndbandinu og má segja að Hrafnhildur slái í gegn.

Fjölmargir hafa skrifað athugasemdir við myndbandið. Ein segir til dæmis: „Þetta var frábært. Ég hef aldrei hitt neinn frá Íslandi en eftir að hafa horft á þetta þarf ég sannarlega að gera það.“ Aðrar athugasemdir eru í sama dúr og virðist sem um ágætis landkynningu sé að ræða.

Fleiri atriði en skyldleiki Íslendinga er nefndur í myndbandinu sem má sjá í heild sinni hér að neðan. Allt saman er þetta á léttu nótunum og munu eflaust einhverjir geta brosað yfir myndbandinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta