Skráningu í Jólastjörnuna 2018 lauk núna um helgina og sóttu tæplega 200 krakkar.
Dómnefnd mun velja 12 þeirra sem verða boðuð í tökur á sjónvarpsþáttum sem sýndir verða í Sjónvarpi Símans, þættirnir verða þrír og sigurvegarinn afhjúpaður í lokaþættinum.
Gunnar Helgason er stjórnandi þáttanna, en í dómnefndinni sitja Björgvin Halldórsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Svala Björgvinsdóttir.
Jólastjarnan mun svo koma fram í Eldborgarsal Hörpu, ásamt dómurunum þremur og fleiri söngvurum á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins.