fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Íþróttin sem er aðeins leyfð einu sinni á ári

Fókus
Fimmtudaginn 11. október 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld í smábænum Fayetteville í Vestur-Virginíu halda árlega uppá afmæli New River Gorge-brúarinnar sem er í 260 metra hæð yfir árfarveginum sem brúa þurfti. Liður í hátíðarhöldunum er að aðeins þennan dag, sem ætíð fer fram þriðja laugardag í október, er heimilt að stökkva ofan af brúnni með fallhlíf á bakinu, svokallað „base jump“.
Aðeins er heimilt að stökkva í sex klukkustunda glugga, en að þessu sinni fer hátíðin fram þann 20. október.

Vinsældir hátíðarinnar hafa farið vaxandi á undanförnum árum og í fyrra stukku 348 frá 33 ríkjum með fallhlíf á bakinu.
Eins og kannski gefur að skilja eru öryggisráðstafanir í fyrirrúmi. Hingað til hafa milli 15 og 20 sjúkrabílar verið á svæðinu meðan hátíðin fer fram og um fimmtíu heilbrigðisstarfsmenn.
Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 1980 og hafa þrjú dauðsföll átt sér stað á þessum 35 árum.
1983: Michael Glenn Williams drukknaði þegar að sterkur straumur hreif fallhlífarbúnað hans með sér. Williams dróst með og enginn kom honum til bjargar þar sem björgunarsveitarmenn voru uppteknir við að aðstoða aðra stökkvara.

1987: Steven Gyrsting féll til jarðar eftir að hvorki aðalfallhlíf hans né varafallhlíf hans opnuðust. Nota þarf sérstakan búnað fyrir base-jump en Gyrsting notaði hefðbundið fallhlífarstökksbúnað sem varð honum að fjörtjóni.

2006: Brian Lee Schubert var of seinn að opna fallhlífina sína og féll harkalega til jarðar. Hann lést af sárum sínum. Lík hans var borið af vettvangi og svo héldu ofurhugar áfram að stökkva af brúnni eins og ekkert hefði í skorist.
Hér má sjá myndband frá hátíðinni árið 2017. Það er ekki fyrir lofthrædda:

Og hér er svo annað frá 2016:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta