„Ef við litum um öxl sjáum við hvernig stjórnvöld hældust af efnahagsstöðugleika, allt í blóma og allir hvattir til að fjárfesta í fasteign til framtíðar því nú væri lag. Lágvaxtaumhverfi sem ekki sást fyrir endann á að þeirra mati,“ segir Inga sem segir óumdeild að stjórnin hafi brugðist alfarið í öllu sem lítur að því að verja heimilin og skuldsett fyrirtæki og fyrirséða eignaupptöku bankanna á þeim.
„Það liggur ljóst fyrir að þetta er skipulögð glæpastarfsemi þar sem markmiðið er að í lokin muni flestir missa heimili sín ekki síður en í efnahagshruninu 2008 þegar Samfylking og VG gáfu skotleyfi á heimilin á meðan þau vörðu auðmenn og fjármálaöflin með kjafti og klóm.“
Inga segir að eftir þetta hafi flestir reynt að forðast verðtrygginguna og tekið lán með föstum vöxtum til þriggja eða fimm ára. Þegar þessi lán koma til endurskoðunar mun greiðslubyrðin hækkað mikið, óhjákvæmilega, enda hafa vextir hækkað mikið á undanförnum misserum.
„Við endurskoðun lánanna með „föstu vextina“ mun greiðslubyrðin a.m.k. tvöfaldast. Um 450 milljarða króna sem kenndar hafa verið við „snjóhengju“ er snjóflóð sem steypist yfir lántakendur á næsta ári að öllu óbreyttu. Þá hvetur seðlabankastjóri lántaka til að ræða við bankann sinn, sem einfaldlega þýðir á íslensku að hvetja fólk í verðtryggð lán til að geta staðið undir afborgunum svona fyrst í stað.“
Inga segir það liggja algjörlega fyrir að verðtryggðu lánin munu éta upp allan eignarhluta á skömmum tíma vegna óbilandi verðbólgu sem hún segir ríkisstjórnina ekki ráða neitt við og raunar ekki kæra sig um að berjast gegn.
„Höfuðstóll verðtryggða lánsins mun hækka gríðarlega eða algjörlega í takti við verðbólgu og innan fárra ára mun afborgun verðtryggða lánsins vera komin á sama stað og óverðtryggða lánsins sem verið var að flýja frá til að freista þess að geta staðið undir afborgunum af heimilinu sínu. Þegar sú staða er komin upp þá liggur það ljóst fyrir að fólk mun missa heimili sín til græðgisvæddra bankanna,“ segir Inga ákveðin og heldur áfram:
„Fólkið er fóður fyrir auðvaldið og ætlunin að koma öllum á leigumarkað hjá græðgisvæddum leigufélögum sem stendur nákvæmlega á sama um það, hvort fólk hefur efni á að greiða leiguna sína eða ekki, þeim verður einfaldlega fleygt út eins og dæmin sanna. Þetta er mannfjandsamleg þróun sem Flokkur fólksins fyrirlítur af öllu hjarta,“ segir hún.
Inga minnir á að hún og Guðmundur Ingi Kristinsson hjá Flokki fólksins hafi verið einu þingmennirnir sem byrjuðu að vera við verðbólgunni í ársbyrjun 2020.
„Það er skemmst frá því að segja að hvorki fyrrverandi fjármálaráðherra né núverandi forsætisráðherra virtu okkur viðlits hvað það varðar. Þeim bar saman um að hér væri engin verðbólga handan við hornið og ástæðulaust að vera með svona svartsýni þegar allt léki í lyndi,“ segir Inga sem segir að lokum:
„Enn og aftur velti ég því fyrir mér ! Til hvers er LANDSDÓMUR ef ekki er til að taka á verkum eða verkleysi ráðherra sem hreinlega vinna samfélaginu óbætanlegt tjón með allri sinni vanhæfni og augljósri vanrækslu.“