fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Eyjan

Björn Leví spyr hvað málið sé varðandi Lindarhvol

Eyjan
Þriðjudaginn 11. júlí 2023 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, ritar grein í Morgunblaðið í dag undir fyrirsögninni „Lindarhvoll – hvað er málið?“. Eins og fyrirsögnin gefur til kynna fjallar hann um Lindarhvolsmálið svokallaða.

„Í síðustu viku var greinargerð setts ríkisendurskoðanda birt. Í kjölfarið tók varnarkórinn við sér og sagði að ekkert nýtt hefði komið fram, að birtingin stangist á við reglur, engin lög brotin, þetta er ekki endanleg skýrsla og svo framvegis. En þetta almenna væl í varnarkórnum eru bara innihaldslausar yfirlýsingar. Það eru atriði þarna sem við vissum ekki um, og nei, þetta er ekki endanleg skýrsla. Það vita það allir,“ segir Björn og bætir við að það sé ástæðan fyrir að rýnt sé í ábendingarnar, sem koma fram í greinargerðinni, og þær bornar saman við lokaskýrsluna.

Hann segir að samkvæmt skýrslu ríkisendurskoðunar þá hafi verktakan, í tengslum við málið, verið í fínu lagi. Þegar Alþingi hafi afgreitt „Project Lindarhvol“ hafi verið reynt að hafa söluferlið eins langt frá pólitíkinni og unnt var með því að: „hvorki Seðlabankinn né ráðherra hafi afskipti af verkefnum félagsins“, eins og fram kom í lagafrumvarpinu. Það fyrsta sem gerist hins vegar er að fjármálaráðherra skipar skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu og framkvæmdastjóra eignarhaldsfélags Seðlabankans, eins og fram kemur í lokaskýrslunni,“ segir Björn og bendir síðan á að í skýrslunni komi ekki fram hversu mikla aðkomu Steinar Þ. Guðgeirsson, eigandi Íslaga ehf., hafði að málinu.

„Í greinargerð setts ríkisendurskoðanda kemur fram að Steinar hafi mætt á fyrsta stjórnarfund Lindarhvols með prókúru á reikning félagsins í Landsbankanum og drög að verktakasamningi við sjálfan sig. Þessi athugasemd setts ríkisendurskoðanda er fjarlægð úr lokaskýrslunni, sem er mjög áhugavert,“ segir Björn og bætir við að Steinar hafi áður verið helsti ráðgjafi fjármálaráðuneytisins í málum er vörðuðu stöðugleikaeignirnar og svo virðist sem hann hafi verið látinn halda því verki áfram innan Lindarhvols þrátt fyrir að þingið hafi vilja fjarlægja verkið frá Seðlabankanum og ráðherra.

„Settur ríkisendurskoðandi komst að því að þessi skipan hafi „ekki tekið nægjanlegt tillit til krafna um aðskilnað starfa, ábyrgðar og innra eftirlits sem hefðu átt að vera til staðar við framkvæmd verkefnisins.“ Er þetta lögbrot? Kannski. Þetta er a.m.k. ekki traustvekjandi og mjög erfitt að sjá hvernig armslengdarsjónarmið standist. Það er enginn sem getur veitt Steinari prókúru á reikning Lindarhvols fyrir fyrsta stjórnarfund félagsins nema ráðherra sem á félagið. Eiginlegur framkvæmdastjóri félagsins er þannig handvalinn af ráðherra og það er bara ekki hægt að horfa fram hjá því sama hvað varnarkórinn syngur,“ segir hann síðan að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Brynjar Níelsson: Mistök að leyfa þjóðinni ekki að ákveða hvort hún vildi fara inn í Evrópusambandið – Viðreisn þurfti ekki að verða til

Brynjar Níelsson: Mistök að leyfa þjóðinni ekki að ákveða hvort hún vildi fara inn í Evrópusambandið – Viðreisn þurfti ekki að verða til
Eyjan
Fyrir 3 dögum

KAPP kaupir bandarískt fyrirtæki í Seattle

KAPP kaupir bandarískt fyrirtæki í Seattle
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“