fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Eyjan

Veltir því fyrir sér hvort „ríksrekinn“ Moggi ætli að skuldasetja sig til að kaupa Bylgjuna og treysta á niðurfellingu

Eyjan
Sunnudaginn 9. júlí 2023 11:00

Guðbjörg Matthíasdóttir og Davíð Oddsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Morgunblaðið er ríkisrekið eins og RÚV.“ Þetta fullyrðir Ólafur Arnarson í pistli á Hringbraut um helgina en þar vísar fjölmiðlamaðurinn í þá staðreynd að Árvakur, útgáfufélag blaðsins, hafi fengið sem nemur 9,5 milljarða króna niðurfellda á núverandi verðlagi.

 

„Árið 2009 felldi ríkisbanki niður 5,6 milljarða króna af skuldum Árvakurs og árið 2011 var bætt um betur og felldur niður 1,9 milljarðar króna af skuldum útgáfunnar. Stóra niðurfellingin var gerð á árinu sem Guðbjörg Matthíasdóttir, auðkona í Vestmannaeyjum, lét ráða Davíð Oddsson í starf ritstjóra blaðsins þegar hann hafði verið hrakinn úr stóli bankastjóra Seðlabanka Íslands eftir að hafa ýtt hruninu af stað að margra mati,“ skrifar Ólafur

Ólafur Arnarson. Mynd: Ernir

Ólafur rifjar málið upp í ljósi fregna um að Árvakur hafi  mikinn áhuga á að kaupa útvarpsstöðina Bylgjuna af SÝN en talið er að söluverðið sé að minnsta kosti einn og hálfur milljarður króna.

„Árvakur hefur verið að basla með rekstur útvarpsstöðvar K-100 sem fengið hefur takmarkaða hlustun á meðan Bylgjan gengur ljómandi vel. Þá vaknar spurning um fjármögnun kaupanna ef til kemur. Mun Árvakur nota sömu aðferð og árin 2009 og 2011 að skuldsetja sig og láta svo ríkisbanka fella skuldina niður? Hvers vegna ekki núna eins og útgáfufélagið hefur komist upp með áður á svona líka myndarlegan hátt? Ríkisreknu fyrirtækin ganga ávallt fyrir,“ skrifar Ólafur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Allir mættu nema Mbappe
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Það sem lesa má í rjómaskálina í eldhúsinu hennar Ingu

Svarthöfði skrifar: Það sem lesa má í rjómaskálina í eldhúsinu hennar Ingu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast