Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að ef fyrirætlanir og verkfallsboðanir Eflingar nái fram að ganga þá liði ekki á löngu þar til að ferðaþjónustan á landinu öllu lamist. Þetta kemur fram í harðorðum pistli Bjarnheiðar sem birtist á Vísi nú fyrir stundu.
Í pistlinum rifjar Bjarnheiður upp þá „ólýsanlegu erfiðleika“ sem ferðaþjónustan glímdi við útaf kórónuveirufaraldrinum og ekki síður þann tekjumissi sem þjóðarbúið var fyrir. Endurreisn og viðspyrna greinarinnar hafi hins vegar verið vonum framar og hafi endurkoma ferðamanna orðið mikilvægasta breytan í hagspám á Íslandi.
„En Adam var ekki lengi í Paradís. Hinn nýi (eða öllu heldur gamli) skóli verkalýðsleiðtoga þessa lands virðist leggja sérstaka fæð á ferðaþjónustu. Nú, á meðan greinin er enn á hnjánum eftir heimsfaraldur, finnst Verkalýðsfélaginu Eflingu það frábær hugmynd að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og höggva í ferðaþjónustu, smátt og smátt, þar til að hún lamast algjörlega,“ skrifar Bjarnheiður og bætir við.
„Áróðursvélar Eflingar hamast linnulaust – bæði nafnlaust og undir nafni – við að mála ferðaþjónustu upp sem þrælakistu þar sem ekki er hugsað um neitt annað en að maka krókinn á kostnað þeirra lægst launuðu. Fólkið sem rekur ferðaþjónustufyrirtækin er kallað öllum illum nöfnum og stillt upp sem ótýndum glæpamönnum, sérstaklega ef fyrirtækin hafa náð að skila einhverjum arði – sem auðvitað er harðbannað og svívirðilegt í augum Eflingar. Það væri auðvitað miklu betra fyrir starfsmenn að fyrirtækin væru öll á hausnum,“ skrifar Bjarnheiður.
Hún minnir á að langflest ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi séu lítil eða meðalstór og rekin af venjulegu fjölskyldufólki.
„Nái fyrirætlanir og verkfallsboðanir Eflingar fram að ganga, þá líður ekki á löngu, þar til ferðaþjónusta á öllu landinu lamast. Ferðaþjónusta byggir á samvinnu margra ólíkra fyrirtækja, sem starfa í nokkurs konar keðju – ef einn hlekkurinn slitnar, þá er voðinn vís. Erlendir ferðamenn munu afbóka ferðir sínar til landsins, gjaldeyristekjurnar hætta að streyma til landsins, fólk missir vinnuna, verðbólgan mun halda áfram að aukast og orðspor áfangastaðarins mun bíða hnekki. Er það það sem við viljum að gerist? Ætlum við að leyfa því að gerast?,“ skrifar formaðurinn.
Bendir hún að verkföll séu skilgreind sem ein af höfuðógunum ferðaþjónustu – við hliðina á náttúrhamförum, stríðsrekstri, farsóttum og hryðjuverkaógn. „Við höfum á allra síðustu árum þurft að kljást við ýmsar ógnanir og þurfum á þessum tímapunkti alls ekki á heimagerðum hamförum í boði Eflingar að halda,“ skrifar Bjarnheiður.