fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Eyjan

Segir lífeyrissjóðina verja „gegndarlausa spillingu og sjálftöku“

Eyjan
Mánudaginn 13. febrúar 2023 13:39

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson telur að almenningur verði að ná fullri stjórn yfir lífeyrissjóðum sínum. Þessir sjóðir hafi undanfarið setið að mestu hjá, sem óvirkir meirihlutaeigendur stærstu fyrirtækja á markaði, og verji þannig spillingu og sjálftöku í viðskiptalífinu.

Hann ritar um þetta á Facebook.

„Almenningur verður að ná fullri stjórn yfir lífeyrissjóðunum okkar.
Sjóðirnir hafa setið að mestu hjá, sem óvirkir meirihlutaeigendur stærstu fyrirtækja á markaði, fyrir tilstuðlan atvinnulífsins, og verja þannig gegndarlausa spillingu og sjálftöku í viðskiptalífinu og fjármálakerfinu sem einkennist af botnlausri græðgi og ört hækkandi arðsemiskröfu.

Versta form spillingar er að vita af henni og aðhafast ekki.“

Ragnar segir að lífeyrissjóðirnir hafi setið hjá þegar hvert fyrirtækið á fætur öðru sé skrælt að innan. Þetta sé gert með því að minnihlutaeigendum séu veitt öll völd í fyrirtækjunum í skóli meirihluta sjóðanna sem skipti sér litið að.

„Sem lítið en stórt dæmi má nefna Stoðir (áður FL-group) í því samhengi, sem tóku ákvörðun um að selja Mílu, einn mikilvægasta fjarskiptainnvið þjóðarinnar, úr Símanum. Og skilja Símann eftir sem skel af félagi með áratuga skuldbindingar á bakinu til að greiða kaupverðið/söluna upp. Engin leið er að sjá fyrir hvort dæmið gangi upp.

Stoðir (áður FL-group) hlaupa svo frá borði með fúlgur fjár í næsta snúning. Lífeyrissjóðirnir fá arðgreiðslur líka en sitja uppi með alla áhættuna.
Framganga Stoða (áður FL-group) teygir sig víða og nú inn í fjármálakerfið, með sameiningardaðri Kviku og Íslandsbanka, en lífeyrissjóðirnir eru þar stórir eigendur.

Gríðarlegar arðgreiðslur og hækkandi arðsemiskrafa hjá Arion banka, en Stoðir (áður FL-group) er stærsti eigandi í Arion með 5,2% á eftir lífeyrissjóðum sem eiga samanlagt minnst 46,3%.“

Með þessu móti séu lífeyrissjóðirnir að viðhalda stefnu „þekktra fjárglæframanna“ um háa arðsemiskröfu, skammtímagróða og áhættusækni. Og þetta sé gert án nokkur tillits til áhrifa á lífskjör almennings, sjóðfélaganna, til skemmri og lengri tíma.

„Hagsmunir sjóðfélaga, sem eru allir þeir sem einhvern tímann hafa greitt í lífeyrissjóð, snúast ekki eingöngu um fleiri krónur í launaumslagið eftir að vinnuskyldu líkur. Heldur um lífskjör okkar á meðan við lifum.

Þannig eru það hagsmunir sjóðfélaga að lækka kostnað við að lifa, að vinna gegn spillingu og græðgi, að veita peningaöflunum aðhald og skapa gegnsæi og stilla arðsemi í hóf. Sýna raunverulega samfélagslega ábyrgð.
Það er ekki mikill metnaður í því að lifa sem þræll alla starfsævina til að hafa það, hugmyndafræðilega, gott á efri árum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Allir mættu nema Mbappe
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Það sem lesa má í rjómaskálina í eldhúsinu hennar Ingu

Svarthöfði skrifar: Það sem lesa má í rjómaskálina í eldhúsinu hennar Ingu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast