fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Eyjan

Guðbjörg Heiða ráðin forstjóri Varðar

Eyjan
Þriðjudaginn 13. desember 2022 10:54

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf forstjóra Varðar. Guðbjörg hefur starfað hjá Marel frá árinu 2011, síðast sem framkvæmdastjóri fiskiðnaðar og framkvæmdastjóri Marel á Íslandi. Áður leiddi Guðbjörg vöruþróunarteymi Marel á Íslandi og í Bretland.

Gert er ráð fyrir að Guðbjörg taki við þann 1. apríl næstkomandi og mun Guðmundur Jóhann Jónsson, sem sagði starfi sínu lausu í október eftir 16 ár í stóli forstjóra, sinna starfinu þangað til.

„Það er mikill fengur að fá Guðbjörgu til liðs við okkur. Vörður og Arion banki eru á sameiginlegri vegferð sem felur í sér mikil tækifæri til þjónustu- og vöruþróunar viðskiptavinum beggja félaga til góða. Guðbjörg býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun, rekstri og vöruþróun sem mun nýtast vel á þessari vegferð. Ég býð Guðbjörgu hjartanlega velkomna í hópinn og hlakka til samstarfsins,“ segir Benedikt Olgeirsson, stjórnarformaður Varðar.

„Vörður er virkilega áhugavert félag sem hefur verið í góðum vexti undanfarin ár. Ég hlakka til að kynnast fyrirtækinu og þeim öfluga hópi fólks sem þar starfar. Tryggingar skipta okkur öll máli og það er spennandi verkefni að fá taka þátt í að móta þjónustu félagsins til framtíðar,“ er haft eftir Guðbjörgu Heiðu í fréttatilkynningu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin sker stjórnarandstöðuna úr snörunni en uppsker engar þakkir – hvað hefði Davíð Oddsson gert?

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin sker stjórnarandstöðuna úr snörunni en uppsker engar þakkir – hvað hefði Davíð Oddsson gert?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði skrifar: Hættið nú að moka, greyin mín!

Svarthöfði skrifar: Hættið nú að moka, greyin mín!
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Hildur Sverrisdóttir svarar fyrir sig

Hildur Sverrisdóttir svarar fyrir sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ráðherra slegin eftir uppákomuna á Alþingi í gærkvöldi – „Ef þetta er rétt er staðan á Alþingi Íslands beinlínis orðin uggvænleg“

Ráðherra slegin eftir uppákomuna á Alþingi í gærkvöldi – „Ef þetta er rétt er staðan á Alþingi Íslands beinlínis orðin uggvænleg“