fbpx
Föstudagur 02.maí 2025
Eyjan

Útdeila um 1.5 milljarði í innviðauppbyggingu – Þessir fengu styrk

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 9. mars 2020 12:45

Frá fundinum í dag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerðu í dag grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2020.

Samtals var úthlutað rúmum 1,5 milljarði króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

33 verkefni fá rúmar 300 milljónir

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitir styrki til 33 verkefna um allt land árið 2020 sem nema samtals 501,5 milljónum króna. Hæstu styrkirnir að þessu sinni eru styrkir til byggingar útsýnispalls á Bolafjalli í Bolungarvíkurkaupstað, áframhald uppbyggingar við Stuðlagil beggja vegna árinnar og bætt fráveitumál í Hrafntinnuskeri. Önnur verkefni sem fá hærra en 15 milljón króna styrki eru bætt salernisaðstaða við Aldeyjarfoss og bygging skýla til náttúruskoðunar við fuglastíg á Norðausturlandi.

Sjá má alla styrkina hér.

Þá hefur undanfarin ár verið lögð aukin áhersla á að efla heilsárs- og árstíðabundna landvörslu enda gegna landverðir mikilvægu hlutverki fyrir verndun náttúru, svo og fræðslu og upplifun ferðamanna á friðlýstum svæðum.

,,Ef við horfum nokkur ár aftur í tímann þá bárust okkur reglulega fréttir af bráðum úrlausnarefnum vegna álags á náttúruna af völdum ferðamanna á ferðmannastöðum, oft innan friðlýstra svæða. Ég tel að við höfum náð botninum í þessu og tekist, hratt og örugglega, að snúa þessari þróun við sem skilar sér í frekari vernd náttúrunnar og jákvæðari upplifun ferðamanna. Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða eru gríðarlega mikilvæg og jafnframt nauðsynleg tæki til þess að taka á þessum málum með markvissum hætti,“

segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

„Það er ánægjulegt að fylgjast með því hvernig það kerfi um náttúruvernd og uppbyggingu innviða sem var búið til með stofnun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða heldur áfram að styrkjast og skila árangri. Það er lykilatriði fyrir þá samhæfðu ferðaþjónustu byggða á grunni gæða sem framtíðarsýn okkar, um að íslensk ferðaþjónusta verði leiðandi í sjálfbærri þróun árið 2030, byggir á,“

segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Gert er ráð fyrir um þriggja milljarða framlagi til þriggja ára, sem rennur til verkefnaáætlunar Landsáætlunar um uppbyggingu innviða sem gildir fyrir árin 2020-2022.

„Sem fyrr er áhersla lögð á að um sé að ræða heildstæða nálgun í gegnum svæðisheildir en einnig á annars konar verkefni s.s. til að auka fagþekkingu, bæta hönnun og samræmingu. Alls hafa verið skilgreindir 119 ferðamannastaðir, ferðamannaleiðir og ferðamannasvæði, þar sem aðgerðir hafa þegar hafist fyrir tilstuðlan landsáætlunar eða eru fyrirhugaðar til og með ársins 2022,“

segir í tilkynningu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Himinninn er að hrynja

Þorsteinn Pálsson skrifar: Himinninn er að hrynja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir alvarlega ógn steðja að lýðræðinu – Nei, það er ekki Trump

Segir alvarlega ógn steðja að lýðræðinu – Nei, það er ekki Trump