fbpx
Fimmtudagur 01.maí 2025
Eyjan

Var Davíð að segja brandara í Mogganum ?

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 1. nóvember 2019 09:33

Davíð Oddsson telur aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu vera gagnslaust hálfkák.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Staksteinahöfundur Morgunblaðsins er gamansamur í dag og fer með prýðilega skrýtlu. Miðað við efni og stíl hennar er ástæða til að velta fyrir sér hvort þar haldi Davíð Oddsson ritstjóri um pennann, en gamansemi hans er margrómuð, þó svo sum Reykjavíkurbréf hans hafi mörgum þótt heldur súr.

Staksteinhöfundur skrifar:

„Á hverju hausti berast fréttir af skógareldum sem engu eira og skilja eftir sig sviðna jörð á stórum svæðum í Kaliforníu. Við þessi ömurlegu og háskalegu tilþrif náttúrunnar bætist svo að yfirvöld standa fyrir manngerðu rafmagnsleysi sem náð hefur til milljóna manna, en rafmagn er tekið af þar sem óttast er að á þurrkatíð geti neistar frá rafmagnslínum kveikt nýja elda.

Síðustu daga var sagt frá ótta um að skógareldar næðu að Minningasetri og bókasafni um Ronald Reagan Bandaríkjaforseta og áður ríkisstjóra í Kaliforníu. En loks komu þá góðar fréttir:

Svöng 500 geita hjörð hjálpaði til við að bjarga bókasafni Ronalds Reagans, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, frá því að verða eldsmatur í einum af þeim ótal eldsvoðum sem nú geisa í Kaliforníu í Bandaríkjunum.“ BBC greinir frá þessu.  Í maí síðastliðnum réðu forsvarsmenn bókasafnsins geiturnar til að fjarlægja eldfimt kjarr sem var áður umhverfis safnið. Var það gert í forvarnaskyni. Geiturnar átu kjarrið og því varð til rjóður sem hefti útbreiðslu eldsins og gaf slökkviliðsmönnum lengri tíma til að bregðast við.“

Getgátur eru um það að forráðamenn bókasafns um Richard Nixon forseta muni fylgja þessu vel heppnaða fordæmi. Þeir munu þegar vera farnir að leita að heppilegum geitastofni og mun watergeitin koma sterklega til álita.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hanna Katrín Friðriksson: Landbúnaður getur blómstrað – má ekki víkja um of frá lögmálum markaðarins

Hanna Katrín Friðriksson: Landbúnaður getur blómstrað – má ekki víkja um of frá lögmálum markaðarins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Margir vilja Guðlaug Þór í forystu í borginni – út með alla núverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Margir vilja Guðlaug Þór í forystu í borginni – út með alla núverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn