fbpx
Föstudagur 26.desember 2025
Eyjan

Bergþór stígur til hliðar

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 7. febrúar 2019 09:56

Bergþór Ólason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bergþór Ólason, Klaustursþingmaður Miðflokksins, hefur stigið til hliðar sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar. Jón Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, tekur við tímabundið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnarflokkunum. Þar segir að nefndin hafi verið óstarfhæf um tíma:

„Umhverfis- og samgöngunefnd hefur nú verið óstarfhæf um tíma og hefur það truflað störf Alþingis. Ekki hefur verið fundað í nefndinni síðan 29. janúar. Þingflokksformenn allra flokka hafa leitað leiða til að vinna úr stöðunni, án árangurs. Samkvæmt samkomulagi um nefndarformennsku minnihlutans kom þessi nefndarformennska í hlut Miðflokksins. Miðflokkurinn hefur ekki viljað skipta um sinn fulltrúa í nefndinni. Bergþór Ólason hefur nú kosið að stíga til hliðar úr formannssætinu.“

Áfram verður reynt að finna endanlega lausn á málinu, en þar til mun Jón Gunnarsson stýra nefndinni:

„Jón Gunnarsson mun taka við formennsku í nefndinni tímabundið á meðan reynt er að finna lausn í málinu sem allir geta sætt sig við. Ari Trausti Guðmundsson tekur við sem 1. varaformaður og Líneik Anna Sævarsdóttir verður 2. varaformaður.“

 Staðan endurskoðuð

Ekki verður samkomulaginu milli stjórnarmeirihlutans og minnihlutans breytt að öðru leyti er varðar fastanefndir þingsins, þar sem minnihlutinn fór með formennsku í þremur fastanefndum:

„Hluti af ábyrgð þeirra sem hafa meirihluta á Alþingi er að tryggja að störf þingsins geti gengið eðlilega fyrir sig. Því telja þingmenn stjórnarflokkanna eðlilegt að þetta sé lausnin á meðan samkomulag næst ekki um annað fyrirkomulag.

 Það er öllum ljóst að um tímabundna lausn sé að ræða til að koma störfum nefndarinnar í rétt horf. Ef og þegar aðstæður breytast eru stjórnarflokkarnir reiðubúnir að endurskoða þessa stöðu og telja raunar mikilvægt að slíkt endurmat eigi sér stað fyrir þinglok. Þar sem hér er um tímabundna ráðstöfun að ræða líta stjórnarflokkarnir ekki svo á að taka þurfi upp allt samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu um formennsku í fastanefndum Alþingis að svo stöddu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Fjöldaframleiddar jólaklisjur

Nína Richter skrifar: Fjöldaframleiddar jólaklisjur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svandís hættir sem formaður VG

Svandís hættir sem formaður VG