Hin mikla uppbygging í ferðamannaþjónustu sem hefur átt sér stað hér á landi frá 2010 virðist nú á undanhaldi. Fækkun ferðamanna hingað til lands er þekkt stærð, en nú er Reykjavíkurborg farin að hafna umsóknum um ný hótel og hótelíbúðir í miðborginni, auk þess sem gistileyfi fá ekki endurnýjun. Þess í stað skal einblínt á íbúðir. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu, sem segist hafa heimildir fyrir því að bankar séu hættir að lána fyrir hótelbyggingum.
„Borgin er orðin mjög treg til að samþykkja fleiri hótelbyggingar. Við ætluðum okkur í fleiri uppbyggingarverkefni í ferðaþjónustunni. Borgin er hins vegar búin að hafna þeim áformum. Við erum þar af leiðandi að breyta plönum okkar og fara úr hótelíbúðum í hefðbundnar íbúðir. Það sem borgin hefur gert hefur að einhverju leyti virkað. Borgin er að reyna að fækka íbúðum í ferðaþjónustu og fjölga íbúðum á almennum markaði. Við höfum fjárfest í einingum þar sem er samþykktur gistirekstur í dag. Þegar við höfum sótt um nýtt rekstrarleyfi, eða jafnvel breytingaráform, hefur því öllu verið hafnað. Við erum að endurhugsa tvö slík verkefni og fara með í aðrar áttir út af hertum reglum hjá Reykjavíkurborg,“
segir Hjalti Gylfason, annar eigandi Mannverks, en þrátt fyrir að ferðamannafyrirtæki séu að bremsa sig niður, er fyrirhugað að taka yfir 800 hótelherbergi í notkun á næsta ári miðað við þau verk sem eru í gangi.