fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Eyjan

Ánægja með göngugötur í miðbænum samkvæmt könnun

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 29. ágúst 2018 14:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meirihluti íbúa Reykjavíkur er verulega jákvæður gagnvart göngugötum í miðborginni, samkvæmt nýrri viðhorfskönnun Maskínu ehf. fyrir umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur. Þetta kemur fram á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Maskína ehf. framkvæmdi annað árið í röð könnun meðal íbúa Reykjavíkur á viðhorfi til göngugatna í miðborginni. 71% svarenda segjast nú jákvæðir gagnvart göngugötunum en 11% eru neikvæðir.

Jákvæðnin eykst eftir því sem fólk fer oftar á göngugötusvæðið og eins í síðustu könnun eru íbúar í Miðborg og Hlíðum jákvæðastir allra. Ekki er mikill munur á afstöðu kynjanna til göngugatnanna þó eru fleiri karlar en konur sem eru mjög jákvæðir með þetta fyrirkomulag.

Alls telja 77% íbúa að göngugöturnar hafi jákvæð áhrif á mannlífið í miðborginni en 8% telja að þær hafa neikvæð áhrif.

Eftirfarandi götum hefur verið breytt í göngugötur undanfarin ár: Laugavegi og Bankastræti, milli Vatnsstígs og Þingholtsstrætis. Skólavörðustíg milli Bergstaðastrætis og Laugavegar. Austurstræti, Veltusundi og Vallarstræti. Pósthússtræti, milli Kirkjustrætis og Hafnarstrætis.

25% vilja göngugötur allan ársins hring

Aðspurðir um tímabil göngugatna, frá 1. maí til 1. október, segja tæplega 40% að tímabilið sé hæfilega langt, 30% vilja lengja tímabilið og 30% vilja stytta það.

Mun fleiri en áður vilja göngugötur allt árið eða 25% svarenda en var 12% í fyrra, en tæplega 5% segjast alfarið á móti göngugötum, sem er sama hlutfall og í síðustu könnun.

Könnunin fór fram á netinu dagana 26. júlí til 22. ágúst. Svarendur voru alls 768, af báðum kynjum á aldrinum 18-75 ára úr öllum hverfum borgarinnar. Skýrslan hefur verið kynnt í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar sem fylgdi henni eftir með samhljómandi bókun:

„Fulltrúar ráðsins lýsa ánægju með niðurstöður skýrslunnar. Skýrslan sýnir stöðugleika milli ára og áframhaldandi ánægju meirihluta borgarbúa með fyrirkomulagið. Það vekur athygli að eingöngu 11% borgarbúa lýsa óánægju með göngugötur. Ráðið mun vinna áfram að þróun verkefnisins en hafa í huga sveigjanleika með hliðsjón af sértækum þörfum. Markmiðið verði ætíð að bæta mannlíf og skapa áfram mannvænt umhverfi í miðborg.“

Tengill

Könnun – VIÐHORF TIL GÖNGUGATNA

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Allir mættu nema Mbappe
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Það sem lesa má í rjómaskálina í eldhúsinu hennar Ingu

Svarthöfði skrifar: Það sem lesa má í rjómaskálina í eldhúsinu hennar Ingu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast