fbpx
Þriðjudagur 12.ágúst 2025
Eyjan

„Nútímastjórnmálamenn telja „likes“ eins og vöggubörn tærnar og því fór sem fór“

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 25. ágúst 2017 09:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir og Davíð Oddsson. Samsett mynd/DV

„Nú­tíma­stjórn­mála­menn telja „likes“ eins og vöggu­börn tærn­ar og því fór sem fór. Ung­ir Fram­sókn­ar­menn hjóluðu í borg­ar­full­trú­ann, sem sætti tíðind­um því ekki hafði heyrst í þeim áður á kjör­tíma­bil­inu. Og formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins sagðist fjór­um sinn­um „virða ákvörðun“ borg­ar­full­trú­ans, hvað sem það þýðir, en sagði dap­ur að full­trú­inn hefði lent í „orðræðu“. Það er skilj­an­legt að for­mann­in­um væri brugðið, því það að lenda í „orðræðu“ er mun al­var­legra en að fara fyr­ir björg eða und­ir járn­braut­ar­lest, sem er snúið hér á landi, en mun lag­ast með borg­ar­lín­unni.“

Þetta segir leiðarahöfundur Morgunblaðsins í leiðara blaðsins í dag, en leiða má að líkum að þar haldi Davíð Oddsson ritstjóri í penna. Ræðir hann þar um úrsögn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur borgarfulltrúa úr Framsóknarflokknum vegna viðbragða flokksmanna við ummælum hennar um „sokkinn kostnað“ við kennslu barna flóttamanna og hælisleitenda.

Sjá einnig: „Samleið minni með Framsóknarflokknum er nú lokið“

Rifjar Davíð upp að fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar hafi verið útlit fyrir að Framsóknarflokkurinn myndi ekki ná inn manni en svo fór að flokkurinn fékk tvo borgarfulltrúa:

Ekki verður full­yrt svo óyggj­andi sé hvað breytt­ist. En það hjálpaði til að flokk­ur­inn virt­ist taka bann­fært efni til lág­marks umræðu. Og eins hitt að hann var heilli í flug­vall­ar­mál­inu en aðrir flokk­ar,

segir Davíð og bætir við:

En nú varð það fyrra málið af þess­um tveim­ur sem hrakti full­trúa Fram­sókn­ar burt. Full­trú­inn hafði talað um „sokk­inn kostnað“ við kennslu inn­flytj­enda sem óvíst væri að dveldu hér áfram. Það er tyrfið tal, en þó leyfi­legt umræðuefni. En sam­stund­is brást náð net­heima og „þeir loguðu“. Það er lýs­ing­in þegar þess­ir 200 í fasta liðinu um­turn­ast.

Davíð segir að svona sé stjórnmálalega staðan í dag:

Þegar að Fram­sókn strýk­ur sér létt utan í „orðræðu“ sem fleytti henni til áhrifa síðast, þá er öll von úti.

„Pólitískt herbragð“

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans svarar Davíð á Fésbókarsíðu sinni nú í morgun:

Líkt og alvöru popúlista sæmir segir leiðarahöfundurinn að pólitísk rétthugsun fámennrar netklíku komi í veg fyrir að umræðan um hælisleitendur sé tekinn. Eitt dyggasta fylgitungl hans var í viðtali við útvarpsstöð í vikunni og fór með svipaða möntru,

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans.

segir Þórður Snær og vísar til nýlegs útvarpsviðtals við Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor:

„Þar lét hann reyndar að því liggja að hælisleitendur sem hingað koma kæmu til að leggjast á velferðarkerfið og láta það sjá fyrir sér. Það er reyndar alrangt. Hagtölur sýna það einfaldlega að félagsleg framfærsla hefur dregist saman í beinu samhengi við aukinn fjölda innflytjenda.“

Sjá einnig: Öfgamúslimi sem vill breyta íslenskum lögum eins og Airbnb leigjandi sem skiptir sér af klæðnaði húseigandans

Segir Þórður Snær að þetta rími einnig ágætlega við grein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í Viðskiptablaðinu í gær.

Sjá einnig: Ef við þorum ekki að ræða stærstu úrlausnarefnin er umræðan og lausnin eftirlátin öfgamönnum

En fólk skal átta sig á að þetta er pólitískt herbragð. Það að storka tilbúnum pólitískum réttrúnaði og mála sig sem þá einu sem þori að taka umdeilda umræðu. Þetta er bragðið sem hefur gagnast Trump og ýmsum evrópskum stjórnmálamönnum gríðarlega vel. Það gengur út á að mála upp velvilja og samkennd sem barnalegan réttrúnað sem ógni „sönnum landsmönnum“. Megintilgangurinn er að stilla innflytjendum og flóttafólki upp sem andstæðingum þeirra sem telja aðstæður sínar ekki boðlegar.

Segir Þórður Snær það enga hræðslu vera við að taka umræðu um málefni flóttamanna eða annarra innflytjenda hér á landi:

Og það er sannarlega ekki andstaða, að mér vitandi, við það neinsstaðar að flýta fyrir afgreiðslu hælisumsókna eins og hægt er til að fólk sitji ekki fast hérlendis árum saman að bíða örlaga sinna. Hin ótekna pólitíska umræða snýst alls ekki um það.

Hins vegar þurfi að taka djúpa pólitíska umræðu sem byggi á getu okkar til að taka á móti fólki sem þurfi á hjálp að halda sem og þörf okkar fyrir fólk til að sífellt eldri þjóð geti haldið upp þeim lífsgæðum sem við viljum hafa:

Munurinn á hópunum sem vilja taka umræðuna er hins vegar nálgunin á hana. Hluti vill nálgast hana af samkennd og með vísun í staðreyndir. Hinir, popúlistarnir, vilja nálgast hana út frá hræðsluáróðri, tilfinningum og pólitísku valdabrölti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi