fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Eyjan

Sigmundur Davíð: „Tel að þau hafi flest yfirgefið Sigurð Inga“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 25. maí 2017 10:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá flokksþingi Framsóknarflokksins í Háskólabíói síðasta haust þar sem Sigmundur Davíð laut í lægra haldi fyrir Sigurði Inga Jóhannssyni í formannskosningum. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Valgerður Sverrisdóttir og Jón Sigurðsson, bæði fyrrverandi formenn Framsóknarflokksins, beittu sér gegn Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni á flokksþingi Framsóknarflokksins síðasta haust. En sem kunnugt er var Sigmundur felldur úr formannsstóli á flokksþinginu af Sigurði Inga Jóhannssyni. Þetta kemur fram í viðtali við Sigmund í Morgunblaðinu í dag.

Segir hann að á flokksþinginu hafi hann áttað sig á að eitthvað mikið var í gangi þegar hann sá Jón og Valgerði þar ásamt stórum hópi fólks, en þau höfðu mörgum árum fyrr hætt formlegum afskiptum af flokksstarfi og vissi Sigmundur að þau væru honum andsnúin. Stuðningur þeirra við Sigurð Inga hafi eingöngu snúist um að losna við sig segir Sigmundur:

Og núna, eft­ir mið­stjórn­­­ar­fund­inn, þar sem fram kom mik­il óánægja með stefnu og for­mann flokks­ins, tel ég að þau hafi flest yf­ir­­gefið Sig­­urð Inga.

Sigmundur Davíð er gestur Björns Inga Hrafnssonar í þættinum Eyjan sem sýndur er kl.21 í kvöld á ÍNN.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi