Sema Erla Serdar skrifar:
Í gær birtist á Eyjunni grein eftir Sighvat Björgvinsson, sem einu sinni var ráðherra, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar og jafnaðarmaður. Greinin, sem eru hans viðbrögð við hryðjuverkunum í Manchester, er gott dæmi um þau viðbrögð sem hryðjuverkamenn óska eftir með voðaverkum sínum.
Greinin hans Sighvatar er uppfull af orðalagi öfgamanna sem einkennist af „við og hinir“ – „okkar menning og ykkar menning“ – „okkar siðir og venjur og ykkar siðir og venjur.“ Sighvatur talar um fólk á flótta sem „gesti“ Evrópubúa og tekur Íslendinga sem dæmi um einhverja góða útgáfu af fólki sem fer á milli landa, sem á að vera einhver andstaða við fólk á flótta í dag og tekst þannig að blanda smá þjóðernisrembingi í þessa ógeðfelldu grein sína.
Sighvatur er þó ekki hættur og kvartar undan því að fólk á flótta fordæmi ekki hryðjuverkaárásir í Evrópu. Hann spyr m.a. „hvers vegna heyrist ekkert slíkt frá þeim samtökum flóttafólks frá hinum ómannúðlega, ófrjálsa og ómennska heimi, sem starfrækt eru í þeim löndum, sem veit hafa flóttafólkinu skjól? Hvers vegna heyrist aldrei hósti né stuna gegn morðverkunum á saklausum hópi gestgjafa frá þeim samtökum – m.a. frá samökum þessa fólks hér á Íslandi?“
Eins og þessir einstaklingar hafi ekki gengið í gegnum nóg nú þegar og gerir enn þá ætlast Sighvatur í alvörunni til þess að fólk á flótta taki ábyrgð á og biðjist afsökunar á gjörðum hryðjuverkamanna sem mögulega koma frá sama heimshluta og þau og bera mögulega ábyrgð á því að fólkið hafi þurft að flýja heimaland sitt, fara frá heimili sínu, fjölskyldu og vinum og á flótta, sem getur kostað fólk líf sitt.
Auðvitað fordæmir flest fólk hryðjuverk en að ætlast til þess að einhver ákveðinn hópur í samfélaginu leggi sig sérstaklega fram við að fordæma slíkt er algjör firring.
Til þess að toppa andstyggilegheitin eru þessar spurningar síðan settar fram með mynd af fjölskyldum, þar á meðal börnum, sem hafa fengið skjól og vernd frá stríðsátökum hér á landi. Sturlun.
Ég veit ekki hvað Sighvati gengur til með því að rita þessa hræðilegu grein en hann má vita það að þetta framlag hans er ekki til neins fallið nema að ala á fordómum og andúð í garð fólks í viðkvæmri stöðu, að ýta undir átök og sundrungu í samfélaginu og þjóna tilgangi hryðjuverkamanna. Þetta er Sighvati til háborinnar skammar!