fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Eyjan

Fjárhagsstaða braggast hjá Borgarbyggð

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 25. maí 2017 13:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borgarnes.

Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2016 var afgreiddur í sveitarstjórn við seinni umræðu þann 11. maí sl.

Samkvæmt reglum um reikningsskil sveitarfélaga skiptist ársreikningur í tvo hluta. Annars vegar er A-hluti, sem er almennur rekstur sveitarsjóðs sem að mestu leyti er fjármagnaður með skatttekjum. Hins vegar er B-hluti sem eru stofnanir í eigu sveitarfélagsins og eru reknar sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar. Undir B-hluta Borgarbyggðar fellur sorphirða, félagslegar íbúðir, Reiðhöllin Vindási, fjallskilasjóðir, fasteignir Hjálmakletts og fjármögnun Hjúkrunarheimilisins að Brákarhlíð.

Niðurstöður og lykiltölur ársreikningsins bera með sér að rekstur sveitarfélagsins gekk vel á árinu 2016. Afkoma sveitarsjóðs er mun betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Þá er efnahagur sveitarfélagsins traustur. Verulegur viðsnúningur hefur náðst í rekstri sveitarfélagsins á síðustu árum.

 

Afkoma umfram væntingar

Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri Borgarbyggðar segir að afkoman hafi verið döpur í mörg ár eftir efnahagshrunið haustið 2008. Þá varð atvinnulífið í Borgarbyggð fyrir ýmsum áföllum. „Til dæmis misstu um 200 manns vinnu bara hjá einu fyrirtæki sem er Loftorka. Nú er hins vegar meira líf í atvinnulífinu þar sem ferðaþjónustan hefur meðal annars lifnað við. Vindar blása nú hagstæðar en áður og fólki fjölgar í sveitarfélaginu. Svo var farið í ýmsar hagræðingaaðgerðir eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Þær eru að skila sér nú. Samin var sérstök aðgerðaáætlun þar sem meðal annars var ákveðið að losa og selja eignir. Það er reyndar ekki alveg búið að klára fyrirhugaða eignasölu. Nú er búið að selja alls fyrir vel á fjórða hundrað milljóna króna. Þetta bætir lausafjárstöðu sveitarfélagsins.“

 

Sterkari fjárhagur

Betri tíð endurspeglast nú sterkt í reikningum Borgarbyggðar. „Útkoman var ágæt árið 2015 og styrktist enn frekar 2016,“ segir Gunnlaugur.

Rekstrarniðurstaða í samstæðu A+B hluta er þannig 427,1 m.kr. að teknu tilliti til reiknaðra liða. Það er 196,1 m.kr. betri afkoma en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Rekstrartekjur A-hluta sveitarsjóðs eru 3.582,6 m.kr. Þar af voru skatttekjur 1.992 m.kr. og framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 1.018 m.kr. Heildartekjur í samstæðu A+B hluta voru 3.935 m.kr. sem eru 347 m.kr. hærri fjárhæð en áætlað var í fjárhagsáætlun. „Það helst í hendur aukin hagræðing, meira líf í atvinnugeiranum auk þess sem við fáum auknar tekjur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og íbúum fjölgar.“

Laun og launatengd gjöld námu alls 2.045 m.kr. hjá A+B hluta samstæðu en 1.898 m.kr. hjá A-hluta. Stöðugildi Borgarbyggðar í árslok voru 257 og hafði þeim fjölgað um 1,8 á árinu. Kaup á vörum og þjónustu voru 1.243 m.kr. hjá A+B hluta og 1.139 m.kr. hjá A-hluta. Fjármagnsgjöld voru 37,9 m.kr. hjá A+hluta.

 

Skuldir lækka

Veltufé frá rekstri var 506,3 m.kr. hjá A+B hluta (364 m.kr. 2015) og 544 m.kr. hjá A-hluta (266 m.kr. 2015). Það gerir 14,1% af heildartekjum hjá A-hluta sem er hækkun frá 8,5% á fyrra ári. Í fyrra seldi Borgarbyggð eignir fyrir 237 m.kr.

Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri Borgarbyggðar.

Samhliða þessu lækka skuldir. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu kemur fram að langtímaskuldir A-hluta „séu einungis 2,5 sinnum hærri en veltufé frá rekstri miðað við að þær voru tæplega sexfalt veltufé á árinu 2015.“  Veltufjárhlutfall (hlutfall lausaskulda og lausafjármuna) er 1,58 miðað við 0,83 á sl. ári. Skuldahlutfall A+B hluta er 119% og fyrir A-hluta er það 77%. Í sveitarstjórnarlögum er miðað við að skuldahlutfall fari ekki yfir 150%.

Afborganir langtímalána voru 273 m.kr   á árinu 2017 og lækkuðu langtímaskuldir A+B hluta um 253 m.kr. milli ára. Skuldaviðmið var 78% fyrir A+B hluta í árslok og 56% fyrir A-hluta. Heildarskuldir A+B hluta eru 4.671 m.kr. og heildarskuldir A-hluta 2.767 m.kr. Lífeyrisskuldbindingar eru 788 m.kr. og hækkuðu þær um 77 m.kr. á árinu. Eiginfjárhlutfall er A+B hluta er 35% en A-hluta 48%. Handbært fé í árslok var alls 641 m.kr. hjá A+B hluta. „Borgarbyggð er nú á góðri vegferð. Skýrt merki um það er að nú er farið að úthluta lóðum, bæði hér í Borgarnesi og á Hvanneyri. Fólk er í framkvæmdahug,“ segir Gunnlaugur A. Júlíusson.

Birtist í landshlutafréttablaðinu Vesturlandi. Það má lesa með því að smella hér fyrir neðan: 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi