Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Framsóknarflokksins boðar stofnunar Framfarafélagsins, hugmyndasmiðja sem á að koma Framsóknarflokknum til aðstoðar. Félagið verður stofnað á laugardaginn. Sigmundur greindi frá þessum áformum í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Segir Sigmundur að félagið sé ekki vísir að nýjum flokk, en Sigmundur hefur verið hvattur til þess að stofna nýjan flokk í kjölfar þess að hann var felldur af formannsstóli af Sigurði Inga Jóhannssyni á flokksþingi Framsóknarflokksins síðasta haust. Hann segir félagið ekki stofnað sem stjórnmálaflokk:
Nei, alls ekki. Félagið mun sjálfsagt þróast með tímanum og láta til sín taka á ýmsan hátt, en þetta er ekki stofnað sem stjórnmálaflokkur.
Sigmundur segir að Framsóknarflokkurinn sé á slæmum stað um þessar mundir. Fylgið hafi dregist saman í síðustu kosningum og nú sé hann að elta málefni annarra flokka, betra væri ef flokkurinn leiddi umræðuna:
Flokkur sem á að setja dagskrána í pólitískri umræðu. Flokkurinn er á miðjunni. Hann verður ýmist róttækur eða einungis til að aðstoða flokka til hægri eða vinstri með sína hugmyndafræði,
segir Sigmundur. Nú sé flokkurinn laskaður eftir innri átök síðustu mánaða og fá tækifæri séu fyrir grasrótina til að láta til sín taka:
Ég hef ekki vettvang innan flokksins eins og sakir standa núna til að beita mér með þessum hætti. En ég vona að sem flestir Framsóknarmenn taki þátt í þessu. Ég vonast til þess að þetta muni styðja við grasrótina í flokknum.
Framfarafélagið verður stofnað í Rúgbrauðsgerðinni kl.11 á laugardaginn. Sigmundur Davíð verður svo gestur Björns Inga Hrafnssonar í þættinum Eyjan á ÍNN sem verður frumsýndur annað kvöld kl. 21.