„Þá er það komið á daginn sem ég spáði og fjölmargir aðrir að stytting framhaldsskólans, sem einn versti menntamálaráðherra sögunnar kom til leiðar, var hið mesta ógæfuspor. „Engin gleði“ í náminu lengur heyrði ég fulltrúa foreldra (heyrðist mér) segja í fréttum áðan.“
Þetta segir Jón Viðar Jónsson og vitnar í frétt Ríkisútvarpsins þar sem fjallað er um að menntaskólanemendur séu í auknum mæli að hætta í íþróttum og tómstundastarfi vegna álags eftir að framhaldsskólanám var stytt. Foreldrar hafa áhyggjur að börn þeirra njóti þess ekki lengur námsins og að vera í skóla en nám var stytt úr fjórum árum í þrjú frá hausti 2015. Yngvi Pétursson rektor segir MR segir að námsárangur sé enn góður en mun meira er um að nemendur hætti tómstundastarfi og dragi sig úr íþróttum sökum álags. Ingunn Kristjana Snædal formaður Foreldrafélags MA tekur í svipaðan streng. Nokkrir nemendur hafa einnig látið í sér heyra og kvarta undan álagi.
Krakkar sem eru í íþróttum og tónlist og verða að hætta í einhverju vegna þess að þau hafi hreinlega ekki tíma,
segir Ingunn. Jón Viðar gagnrýnir einnig styttingu námsins og hjólar í Illuga Gunnarsson fyrrverandi menntamálaráðherra. Segir Jón að enginn tími sé lengur til góðra og uppbyggilegra tómstundaiðkana. Þær skipti máli á þessum mótunarárum og kveðst hann óendanlega þakklátur fyrir að hafa haft tíma til að sinna slíku þegar hann var við nám í menntaskóla. Jón Viðar segir:
En gleðin skiptir menn eins og Illuga Gunnarsson og þau öfl sem hann er handbendi fyrir engu. Allt skal ofurselt sálarlausum „þörfum atvinnulífsins“ sem heimta „starfskraftana“ út á markaðinn ekki seinna en í gær. Þessir menn eru púrítanar nútímans og afleiðingar verka þeirra verða jafn ömurlegar og hins kalvíníska ofstækis á sínum tíma; það voru til dæmis afsprengi þess sem drápu hina aldagömlu íslensku vikivaka á átjándu öld og gerðu Íslendinga að danslausri þjóð í tvær aldir eða svo.
Brynjar: Afturhaldsraus
Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins kom síðan félaga sínum, Illuga Gunnarssyni, til varnar og spyr:
„Trúir þú því að gleðin ráðist af því að námið verði fjögur ár í stað þriggja? Mér sýnist nú ungmenni lifa þokkaleg af í þeim löndum sem framhaldsskólinn er tvö ár. Þetta er bara afturhaldsraus í þér Jón Viðar og kannski virðingarleysi gagnvart skattgreiðendum […] árafjöldinn sem slíkur ræður ekki úrslitum um velferð ungmenna.“
Jón Viðar svaraði Brynjari:
Það sýnir best hversu vondan málstað þú ert að verja Brynjar Níelsson að það eina sem þú hendir hér fram er heimskulegur skætingur og stóryrði. Að öðru jöfnu mundi maður líta svo á að svona þvaður væri ósamboðið alþingismanni en sjálfsagt er þetta nú bara kurteisishjal á þinn mælikvarða.