fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Eyjan

Flugfélag Íslands heitir núna Air Iceland Connect

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 24. maí 2017 10:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfélag Íslands mun frá og með deginum í dag taka upp nýtt nafn; Air Iceland Connect. Ástæður fyrir nafnbreytingunni eru nokkrar og má þar nefna aukin umsvif á erlendum mörkuðum, umtalsverða fjölgun erlendra ferðamanna, aukið samstarf við Icelandair og einföldun á markaðsstarfi, en tvöfalt nafnakerfi félagsins hefur þýtt talsverðan kostnaðarauka og valdið einhverjum farþegum óþægindum og orsakað misskilning segir í fréttatilkynningu.

Við höfum notað nafnið Air Iceland um árabil en með því að bæta við orðinu Connect, eða tengja, sýnum við tengingu við íslenska náttúru og áfangastaði, tengingu við okkar erlenda áfangastaði á borð við Grænland,  Skotland og Norður-Írland og aðgreinum okkur aðeins frá Icelandair. Þetta er lýsandi nafn, alþjóðlegt og við erum sannfærð um að þetta muni leiða til sterkara vörumerkis á þeim alþjóðamarkaði sem flugsamgöngur vissulega eru

segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Air Iceland Connect:

Félagið hefur verið að vinna í breytingum um nokkurt skeið, endurnýjað flugflotann, aukið samstarfið við Icelandair, tekið á móti sífellt fleiri erlendum ferðamönnum og skilgreint markaðsstefnu okkar enn betur. Það er rökrétt næsta skref að leggja niður þetta tvöfalda nafnakerfi og taka upp eitt lýsandi og alþjóðlegt vörumerki.

Nafnbreytingin mun taka einhvern tíma og mun lénið www.flugfelag.is t.a.m. verða virkt en áframsenda notandann á heimasíðu félagsins www.airicelandconnect.com.

Auk algjörrar endurnýjunar á flugflota Air Iceland Connect þar sem Fokker vélum var skipt út fyrir nýrri og betri vélar af gerðinni Bombardier Q-400 og Q-200, hefur félagið á síðustu mánuðum hafið áætlunarflug milli Akureyrar og Keflavíkur, aukið flug til Grænlands og Skotlands og frá og með 1. júní bætist við nýr áfangastaður; Belfast á Norður-Írlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Enn eru fornmenn á ferð