Ólafur Arnarson segist hafa þurft að sitja undir alvarlegum ásökunum stjórnar Neytendasamtakanna sem hafi ekki átt við rök að styðjast. Ólafur sagði af sér sem formaður Neytendasamtakanna í gær.
Sjá frétt: Ólafur segir af sér sem formaður Neytendasamtakanna
Hefur hann verið sakaður um að hafa smalað nýjum félagsmönnum í samtökin síðasta haust gagngert til að kjósa hann sem formann á þingi samtakanna í október 2016. Því hafnar Ólafur alfarið. Í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun sagði Ólafur að hann hefði reynt að koma á sáttum en hafi ekki mætt vilja til þess hjá stjórn Neytendasamtakanna.
Stjórnin lagði fram vantraust á Ólaf í maí vegna 50% launahækkunar Ólafs, bíl sem hann lét samtökin kaupa til eigin nota og 700 þúsund króna mánaðargreiðslna í smáforritið Neytandann án þess að hafa til þess samþykki frá stjórninni. Ólafur segist ekki hafa tekið ákvörðun um launahækkun sína en hann hefði átt að bera samninginn um smáforritið undir stjórnina.
„Ég var ekki sá eini sem smalaði á þetta þing“
Þegar málið kom upp í maí komu fram ásakanir um að hann hefði smalað fólki í samtökin til að kjósa sig formann síðasta haust. Sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir formaður Ungra Pírata í langri Fésbókarfærslu að hún hefði setið á þinginu og orðið vitni af stórum hópi fólks sem tengdist Ólafi mæta á þingið rétt fyrir formannskosninguna. Þó skal taka fram að faðir Dóru var einnig í formannsframboði.
Ólafur vísar því alfarið á bug að hafa smalað með óeðlilegum hætti á þingið:
Ég var ekki sá eini sem smalaði á þetta þing. Það voru þrír frambjóðendur sem smöluðu. Mér gekk hins vegar mun betur enda var ég kannski með skýrustu sýnina um það hvert ég vildi fara með samtökin.