„Þegar ég var ungur, hélt ég, að á Íslandi væri ókeypis velferð að norrænum hætti. Líklega var það nokkurn veginn rétt í þá daga. Nú veit ég, að ekki lengur ríkir hér ókeypis velferð.“
Þetta segir Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri á vefsíðu sinni. Segir hann að þegar hann hafi verið ungur og Ólafur Thors var forsætisráðherra, þá hafi verið var ókeypis velferð hér á landi þegar kom að heilsu. Í dag sé Ísland hins vegar margfalt ríkara land og nú þurfi fólk að borga:
Fátækir eru látnir borga sitt krabbamein. Margir neita sér beinlínis um læknishjálp og lyfjakaup,
segir Jónas. Hafnar hann því að vera sósíalisti, ókeypis heilbrigðisþjónusta sé eitthvað sem meirihluti fólks vilji:
Þessi stefna er keyrð fram af pólitísku trúarofstæki, þótt ríflegur meirihluti kjósenda vilji ókeypis velferð. Ég fylgi þeim meirihluta, en er ekki sósíalisti. Tel þetta vera ástand, sem þarf að laga og verði lagað. Felur bara í sér mannlega samstöðu, burtséð frá gömlum kreddum. Sem hafa um áratugi stolið öllum hagvexti Íslands.